Jónína Björg Helgadóttir: "Brjóta. Breyta"

fimmtudagur, 25. september 2025
Jónína Björg Helgadóttir: "Brjóta. Breyta"
Jónína Björg Helgadóttir sýnir
Mjólkurbúðin, Kaupvangsstræti 12, 600 Akureyri
27. sept - 5. okt 2025
Sýningaropnun 27. september kl. 14-17
Sýningin stendur til 5. október, opið um helgar frá kl. 14-17.
Sýningin ,,Brjóta. Breyta” opnar laugardaginn 27. september. Það er myndlistamaðurinn Jónína
Björg Helgadóttir sem opnar þessa sýningu í Mjólkurbúðinni á Akureyri.
Þetta er áttunda einkasýning Jónínu Bjargar, sem hefur verið starfandi myndlistamaður frá því
að hún útskrifaðist frá Myndlistaskólanum á Akureyri 2015. Verk hennar eru fígúratív verk með
mikla áherslu á konuna, oft litrík og áberandi verk. Fyrir utan einkasýningar hefur Jónína tekið
þátt í fjölda samsýninga, erlendis og hér heima. Verk eftir hana má finna í persónulegri og
opinberri eigu.
Jónína Björg segir að verkin, sem eru olíumálverk, annars vegar á striga og hins vegar við, séu
mjög persónuleg. ,,Ég mála fígúratív málverk út frá eigin hugarheimi og tilfinningum. List hefur
alltaf gert mér kleift að gera tilfinningar mínar og hugsanir sýnilegar. Jafnvel þær sem ég er ekki
meðvituð um fyrr en ég sé þær á striganum. Þó að þessi verk séu persónuleg fyrir mér hef ég
alltaf mestan áhuga á að heyra hvað áhorfendur sjá í verknunum. Ég er búin að koma mínu frá
mér og fólk með aðra reynslu sér aðra hluti. Eða það tengir við verkin og upplifir þau svipað og
ég, sem er líka fallegt.”
Á þessari sýningu má finna meðal annars vatn, þara og konur, sem Jónína vinnur mikið með.
Form verkanna er þó að breytast, en þar sem áður voru ferkantaðar plötur og strigar eru nú líka
hálfhringir og önnur form úr timbri sem grunnur fyrir málverkin. ,,Nú er ég að vinna með formin
sem hafa oft verið áberandi hjá mér, nema þau virðast hafa stokkið út úr striganum og eru nú að
eignast eigið líf. Ég hef verið að vinna meira með timbur dags daglega, og byrjaði að saga út
þessi form sem hingað til hafa verið málaðir fletir á striga. Nú eru sum verkana samsett úr
plötum sem ég hef sagað til og málað á.
Hún segir frelsi í því að geta sett saman fleiri einingar sem eitt verk, því þá sé hægt að splæsa
saman ólíkum hugmyndum og mynda tengsl þeirra á milli. ,,Þessar myndir koma til mín fyrst í
hversdeginum, poppa upp í hugann. Svo kem ég á vinnustofuna og byrja að setja saman myndir
úr huganum og sjá hverjar eiga að hanga saman sem eitt verk. Ég reyni að pæla sem minnst í
því og leyfa þessu bara að gerast, þá flæðir þetta fram óhindrað. Ég hef mjög gaman af þessu
ferli og það hefur tekið mig tíma að sætta mig við það og læra inn á það.”


