Jóní Jónsdóttur: Heyrðu mig

fimmtudagur, 13. ágúst 2026
Jóní Jónsdóttur: Heyrðu mig
SÝNINGIN OPNAR FÖSTUDAGINN 14 ÁGÚST KL. 20
Verkið Heyrðu mig er dansverk og innsetning sem tekur yfir alla sali Ásmundarsals. Verkið er innblásið af lífi dansarans Diljár Sveinsdóttur sem fæddist með takmarkaða heyrn en fór sem barn í kuðungsígræðslu. Hún hefur síðan þá skapað sér leið sem atvinnudansari og listakona. Sveinbjörg Þórhallsdóttir er danshöfundur Heyrðu mig en hún er einnig móðir Diljár. Dansverkið segir frá ferðalagi Diljár, frá bernsku til dagsins í dag, þar sem baráttan, þrautseigjan, líf og list flæða inn í hreyfingu, rytma og líkama. Dansverkið er flutt inn í innsetningu eftir Jóní Jónsdóttur en innsetningin byggir á eyranu sjálfu, bifhárunum og kuðungnum. Urður Hákonardóttir gerir tónlist og hljóðmynd.
Í Gryfjunni er vídeóinnsetning þar sem gestum gefst færi á að upplifa hljóðheiminn eins og Diljá upplifir hann. Á kaffihúsinu má svo sjá ljósmyndir sem unnar eru út frá verkinu.
Hægt er að skoða innsetninguna á opnunartíma safnsins en upplýsingar um sýningartíma dansverksins og miðasölu má finna á asmundarsalur.is
