top of page

Jólasýningin 2023 í Ásmundarsal

508A4884.JPG

fimmtudagur, 30. nóvember 2023

Jólasýningin 2023 í Ásmundarsal

Verið hjartanlega velkomin á opnun Jólasýningarinnar í Ásmundarsal 2023, laugardaginn 2. desember frá kl. 14-17.

Sýningin er sölusýning með verkum eftir 32 samtímalistamenn, sem flestir hafa unnið verk sérstaklega fyrir þessa sýningu. Við endurtökum einnig leikinn frá því í fyrra og gefum út bók samhliða sýningunni sem veitir innsýn inn í vinnustofur og hugarheim listamannanna sem eru með verk til sýnis og þar með nær sýningin að lifa áfram eftir jólin.

LISTAMENN Á JÓLASÝNINGUNNI 2023

Amanda Riffo
Andreas Brunner
Árni Jónsson
Á. Birna Björnsdóttir
Brák Jónsdóttir
Claire Paugam
Claudia Hausfeld
Curro Rodriguez
Elísabet Brynhildardóttir
Emma Heiðarsdóttir
Eva Ísleifsdóttir
Finnbogi Pétursson
Finnur Arnar
Fritz Hendrik
Gabríela Friðriks
Geirþrúður Hjörvar
Helga Páley
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson
Ívar Valgarðsson
Karolina Hellberg
Kristin Nordhoy
Kristinn E. Hrafnsson
Logi Leó
Loji Höskuldsson
Lukas Kindermann
Nína Óskarsdóttir
Shui Yi
Sigurður Guðjónsson
Sigurrós G. Björnsdóttir
Valgerður Sigurðardóttir
Weronika Balcerak

Í Gryfjunni verður starfrækt Bókaverzlun þar sem áhersla verður lögð á að kynna nýjar bækur í bland við gamlar og rótgrónar bókmenntir, þeirra á meðal bókverk og bækur um myndlist. Þessi jólin eiga gestir og gangandi því eftir að geta sótt sér innblástur í bækur í Ásmundarsal og spjallað við marga fremstu rithöfunda landsins á Jólabóka-glöggi, kvöldviðburði sem unninn er í samstarfi við Ragnar Jónasson og Sverri Norland, haldinn alla þriðjudaga fram að jólum frá kl. 20-22.

Almennur opnunartími sýningar verður alla daga frá 13-17 ~ en opið til kl. 20 dagana 22. og 23. desember.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page