Jól á frídegi Verslunarmanna í Ásmundarsal 03. ágúst kl. 15-17

föstudagur, 31. júlí 2026
Jól á frídegi Verslunarmanna í Ásmundarsal 03. ágúst kl. 15-17
Á frídegi Verslunarmanna tekur Hildigunnur Birgisdóttir vel á móti gestum og kveður sýninguna Jól á sérstakri opnun frá kl. 15-17 í Ásmundarsal.
– Athugið að Ásmundarsalur er lokaður á frídegi Verslunarmanna og einungis opið frá kl. 15-17 þann 03.08. –
Jól
25.06–03.08.2026
Hildigunnur Birgisdóttir (f. 1980, Reykjavík) er þekkt fyrir blæbrigðaríka listsköpun sem lítur gagnrýnum augum á hnattræn framleiðslu- og útflutningskerfi og á undarlegt lífshlaup varanna sem þau geta af sér. Í verkum sínum dregur Hildigunnur athygli að hinu smáa, einnota hlutunum sem gjarnan eru fjöldaframleiddir fylgihlutir neyslumenningar: umbúðum, verðmiðum, merkingum og upplýsingakerfum. Hún gefur þessum hlutum ný hlutverk, umbreytir virði þeirra og merkingu algerlega þannig að hægt sé að upplifa þá aftengda uppruna sínum. Um efnistök sín segir Hildigunnur: „Óheppilegar afurðir neysluhyggju eru efniviðurinn og manngerð kerfi eru áhöldin"
Hildigunnur býr og starfar í Reykjavík hún hefur sýnt víða en hún var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíræingnum, 2024. Verk hennar hafa einnig verið á sýningum í Listasafni Reykjavíkur; listasafninu GES-2, sem rekið er af V-A-C Foundation í Moskvu og H2H í Aþenu. Verk hennar má meðal annars finna í safneign Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur og Nýlistasafnsins. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2003.
