Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Hrönn Björnsdóttir - “Samtal” í Mjólkurbúðinni

fimmtudagur, 22. maí 2025
Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Hrönn Björnsdóttir - “Samtal” í Mjólkurbúðinni
Listakonurnar Jóhanna V Þórhallsdóttir og Hrönn Björnsdóttir mætast undir sýningarheitinu “Samtal” í Mjólkurbúðinni á Akureyri. Öll verk á sýningunni eru unnin með blandaðri tækni, abstrakt og expressjónísk verk á striga og pappír. Samtal er samspil ólíkra verka sem býður uppá spuna og óvæntar tengingar.
Þetta er önnur samsýning þeirra tveggja saman, en Jóhanna og Hrönn hafa átt farsælt samstarf í Anarkíu Listasal í Kópavogi sem siðar varð Art gallerí Gátt sem þær ráku ásamt fleiri listamönnum. Báðar eiga að baki margar einkasýningar ásamt fjölda samsýninga bæði hér á landi og erlendis. Listakonurnar eru félagar í SÍM.
Opnun er föstudaginn 23. maí kl. 16-18 sýningin stendur til 3. júní og er opin daglega frá kl 12-17.