top of page

Innsýn, útsýn - Listasafn Íslands í 140 ár

508A4884.JPG

fimmtudagur, 3. október 2024

Innsýn, útsýn - Listasafn Íslands í 140 ár

Í tilefni af 140 ára afmæli Listasafns Íslands verður opnuð ný sýning þar sem þessara tímamóta er
minnst. Sýningin ber heitið Innsýn, útsýn - Listasafn Íslands í 140 ár en þar má sjá má verk eftir
hátt í 100 listamenn, mikilsverðar gjafir sem safninu hafa borist og verk sem það hefur keypt í
tímans rás.

Sýningunni er skipt upp í fjóra hluta sem eru: samfélagið, myndir af manneskjum, form og maður
og náttúra. Þessi fjögur þemu skarast vitaskuld en verk listamanna sem horfa út – á landið, nánasta
umhverfi, samfélagið eða heiminn allan – veita gjarnan nýja sýn sem leiðir til sjálfsuppgötvunar
einstaklinga og samfélags. Að sama skapi má segja að þeir listamenn sem horfa í verkum sínum inn
á við, í könnun á sjálfinu, sögu eða menningararfi, opni um leið sýn út á við; víðari heimsmynd.

Á sýningunni eru hátt í 200 verk eftir tæplega 100 listamenn, þar á meðal málverk, skúlptúrar,
ljósmyndir, vídeó, innsetningar og bókverk. Verkin á sýningunni spanna tímann frá stofnun
safnsins, þegar safneignin samanstóð fyrst og fremst af verkum eftir norræna listamenn eins og
Önnu Ancher og Berthu Wegmann, til tíma frumkvöðlanna , Þórarins B. Þorlákssonar og
Jóhannesar S. Kjarvals, eftirstríðsáranna sem Nína Tryggvadóttir og Louisa Matthíasdóttir er
fulltrúi fyrir, og fram á tímaskeið framúrstefnumanna á borð við Magnús Tómasson og Sigurð
Guðmundsson. Á sýningunni eru einnig glæný verk eins og En þú ert samt of brún fyrir Íslending
eftir Melanie Ubaldo, sem eru til marks um hvernig myndlistarmenn eru sífelld að kljást við ný
viðfangsefni og breytingar í samfélaginu. Verkin á sýningunni gefa ákveðna innsýn í listasögu
okkar, frá öndverðu og til okkar daga en jafnframt gefur að líta alþjóðlega vídd í verkum eftir
heimsþekkta listamenn, svo sem Edward Munch, Pablo Picasso, Dieter Roth og Roni Horn.

Í tilefni af afmælinu er gefið út sérstakt afmælisrit sem er nokkurs konar systurverkefni
sýningarinnar en í það skrifa ýmsir fræðimenn meðal annars fyrrverandi safnstjórar Listasafns
Íslands um 140 verk úr safneigninni og túlka þau hver með sínum hætti.

Sýningaropnun verður laugardaginn 12. október 2024, klukkan 14:00. Sýningin stendur til 30. mars 2025.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page