top of page

Ingibjörg Hauksdóttir: Skynjun

508A4884.JPG

miðvikudagur, 11. desember 2024

Ingibjörg Hauksdóttir: Skynjun

Fimmtudaginn 12. desember opnar Ingibjörg Hauksdóttir sýninguna sína, Skynjun í Hannesarholti.

Ingibjörg Hauksdóttir er fædd í Reykjavík 1961. Árið 1984 byrjaði hún í myndlistarnámi við Otis Art Institute of Parsons School of Design í Los Angeles og var þar við nám í tvö ár. Eftir að hún flutti aftur til Íslands hóf hún nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist frá málaradeild 1992. Eftir það vann hún að myndlist sinni ásamt því að sinna kennslu. Árið 2008 hóf hún meistaranám við TransArt/Donau Universitat in Krems, Austurríki, og lauk þaðan námi í Master of Fine Arts in New Media árið 2010.

Ingibjörg hefur tekið þátt í sýningum víðsvegar m.a. í Berlín, New York, Kaliforníu, Barselóna og Reykjavík.
Í verkum sínum leitar Ingibjörg uppi kjarna sameiningar í skynjun náttúru umhverfisins og tengist því að tilheyra stærra samhengi. Vellíðunar tilfinning sem upplifun af náttúru sem er í senn harðgerð, viðkvæm, stórbrotin, fíngerð og hverful. Allt þetta togast á í myndheimi Ingibjargar og til verða litir og form skýrra ímynda af villtri óhamdri náttúru Íslands. Verkin eru unnin með olíu á striga.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page