Icelandic Art Center: Vinnustofudvöl í Kunstlerhaus Bethanien 2023-2024 - Opið fyrir umsóknir

mánudagur, 8. ágúst 2022
Icelandic Art Center: Vinnustofudvöl í Kunstlerhaus Bethanien 2023-2024 - Opið fyrir umsóknir
Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar hefur opnað fyrir umsóknir um vinnustofudvöl í Kunstlerhaus Bethanien í Berlín frá 1. maí 2023 – 15. apríl 2024. Künstlerhaus Bethanien var stofnuð árið 1974, og er ein rótgrónasta og virtasta stofnun Þýskalands á þessu sviði. Að jafnaði starfa um 25 listamenn víðsvegar að úr heiminum við miðstöðina, sem býður upp á alþjóðlegt tengslanet og samstarf innan samtímamyndlistar.
Dvölin veitir listamönnum sem þar dvelja aðgengi að öflugu, alþjóðlegu tengslaneti; sýningarstjórum, safnafólki, blaðamönnum og öðrum sem starfa innan geirans. Auk þess heldur stofnunin utan um sýningarhald, útgáfu og ýmsa viðburði fyrir listamennina sem þar dvelja. Á meðan vinnustofudvöl stendur heldur hver listamaður einkasýningu á vegum Künstlerhaus Bethanien. Boðið er upp á einkavinnustofu sem er 40 m2 að stærð og fullan aðgang að verkstæðum og bókasafni. Listamaður hefur kost á því að búa á vinnustofunni óski hann þess, en þar er til staðar eldhúskrókur og rúm. Uppihald er ekki innifalið í vinnustofudvölinni.
Dvölin er fjármögnuð af mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Viljandi, minningarsjóði.
Áhersla verður lögð á að bjóða listamönnum til dvalarinnar sem hafa verið starfandi í þónokkurn tíma og hafa áhuga á því að leita tækifæra utan landsteinanna. Gert er ráð fyrir að viðkomandi listamenn hafi sýnt á söfnum og viðurkenndum sýningarstöðum hérlendis og erlendis.
Forval á umsóknum verður í höndum fagráðs KÍM, en lokaval á listamanni verður í höndum Künstlerhaus Bethanien.
Ekki er um eiginlegt umsóknarform að ræða en óskað er eftir því að eftirtalin gögn séu send inn til grundvallar vali:
Kynningarbréf frá listamanni
CV
Portfolio
Greinar og fjölmiðlaumfjöllun ef við á
Stutt greinagerð á því hvernig listamaður hyggst nýta sér dvölina, markmið og væntingar.
Gert er ráð fyrir að efni sé eingöngu sent á rafrænu formi. Hægt er að senda vefsíðuslóðir, linka á myndbönd, pdf skjöl eða hvað sem hentar best. Ef umsækjandi óskar þess er einnig heimilt að senda meðmælabréf með umsókn.
Athugið að öll umsóknargögn þurfa að vera á ensku.
Vinsamlega sendið gögnin á info@icelandicartcenter.is
Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2022