top of page

Hugo Llanes: Bonita

508A4884.JPG

fimmtudagur, 12. mars 2026

Hugo Llanes: Bonita

Hafnarhús

12.03 - 26.04.2026

Á sýningunni Bonita fjallar Hugo um það margslungna ferli að aðlagast nýrri menningu sem innflytjandi. Hann sækir innblástur í bæði íslenska og mexíkóska menningu –tungumál, matarhefðir, listasögu og tónlist – til að kanna hvernig þessar hefðir blandast, hvaða hliðstæður koma í ljós og hvað það þýðir að tilheyra.

Hugo er fæddur í Mexikó en býr og starfar í Reykjavík. Hann er með meistaragráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands og BA gráðu í sjónlistum frá Universidad Veracruzana í Mexíkó. Hugo hefur sýnt víða og verið virkur þáttakandi í frumkvæðum sem miða að inngildingu minnihlutahópa í íslenska myndlistarsenu, svo sem verkefnið Komd’inn, félagasamtökunum Artists in Iceland Action Visa Group, og Get Together (GETA).

Sýningaröðin í D-sal hóf göngu sína árið 2007. Hér er listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.

Sýningarstjóri er Björk Hrafnsdóttir

Sama kvöld verður kynnt einstakt úrval verka úr myndaröðinni Víðáttur sem bætast við á sýninguna Erró: Remix sem stendur yfir í Hafnarhúsi.

Sýningarstjóri er Danielle Kvaran.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page