Hringferð í smástundarsal: Þórdís Erla & Shu Yi
fimmtudagur, 30. maí 2024
Hringferð í smástundarsal: Þórdís Erla & Shu Yi
Ásmundarsalur flakkar um borgina með færanlega listsýningu þar sem upplifa má alltumlykjandi innsetningu þeirra Þórdísar Erlu Zoëga og Shu Yi. Umbreyttur gámur, Smástundarsalur, mun heimsækja fjóra staði víðsvegar um borgina þar sem gestum býðst að stíga inn, kanna rýmið í kyrrð, velta vöngum og kveikja á öllum skynfærum.
Listakonurnar deila brennandi áhuga á að skoða hvernig við skynjum rými og hér skapa þær sýningu þar sem fagurfræðileg sýn fléttast saman við frásagnir ólíkra menningarheima og úr verður leiftrandi samtal austurs og vesturs. Hringferð rýfur efnisleg mörk og hrífur gesti með sér inn í kjarna verksins. Uppákomur og skemmtiatriði á hverjum áfangastað!
Dagskrá
2. júní kl.14-16 | OPNUNARHÓF | Freyjugata 41, Miðbær
7. júní kl.17-19 | BLOKKARPARTÝ | Æsufell, Breiðholt
14. júní kl.17-19 | STRANDPARTÝ | Strandvegur, Grafarvogur
17. júní kl.14-16 | GARÐPARTÝ | Hljómskólagarður, Miðbær.
Þórdís Erla Zoëga (f.1988) er íslensk listakona sem hefur sýnt víða á Íslandi og í Evrópu. Verk hennar eru knúin áfram af efnisrannsóknum og stafrænni nánd, póst-húmanisma og vísindaskáldskap. Shu Yi (b.1986) er fædd í Kína en býr í Reykjavík. Í listsköpun sinni vinnur hún fyrst og fremst með analóg ljósmyndun, margmiðlun og reiknirit. Shu Yi hefur lært og starfað í Beijing, London og Reykjavík. Í verkum sínum rýnir hún í margþætt landslag kraftmikilla og hverfula upplifanna.