Hrafnkell Sigurðsson: X

miðvikudagur, 28. október 2026
Hrafnkell Sigurðsson: X
Kjarvalsstöðum, opnun laugardaginn 31 október kl 15:00
Hrafnkell er tíundi listamaðurinn sem valinn er til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum, þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi.
Sýningin veitir yfirlit yfir rúmlega þrjátíu ára feril listamanns ásamt því að sýna ný og áður óséð verk. Hver ljósmyndasería er sett fram sem eitt listaverk, stakar einingar sem mynda saman eina heild. Áhorfendur stíga inn í hugarheim listamannsins þar sem listaverk hans gnæfa yfir þeim. Titill sýningarinnar vísar í skurðpunkt á ferli listamannsins þar sem X markar staðsetningu, vegamót og hið óþekkta.
Hrafnkell Sigurðsson er fæddur 1963 í Reykjavík og hóf nám í Myndlista og handíðarskóla Íslands 1983. Í beinu framhaldi fór hann út í framhaldsnám í Jan Van Eyck Akademíuna í Maastricht og árið 2002 lauk hann M.A. gráðu í myndlist frá Goldsmiths Háskólanum í London. Ljósmyndun hefur verið hans meginmiðill frá árinu 1990 þótt listsköpun hans nái einnig yfir verk í öðrum miðlum svo sem vídeó, skúlptúr og innsetningar. Sem ungur listnemandi var Hrafnkell einnig meðlimur pönkabilly hljómsveitarinnar Oxsmá sem var ekki síður þekkt fyrir sviðsframkomu og stuttmyndir sínar.
Mynd: Hrafnkell Sigurðsson, Án titils, ljósmynd. 2001.
