top of page

Hjörtur Matthías Skúlason: Stormur í Grafíksalnum

508A4884.JPG

þriðjudagur, 1. ágúst 2023

Hjörtur Matthías Skúlason: Stormur í Grafíksalnum

Hjörtur Matthías Skúlason opnar myndlistarsýningu sína, STORMUR, næstkomandi fimmtudag, 3. ágúst, kl 17:00-19:00 í Grafíksalnum, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17 (hafnarmegin). Sýningin verður opin til og með 15. ágúst, opið verður fimmtudaga - sunnudaga kl 14:00-17:00.

Stormur

Stormurinn er afl sem er handan við ásetning og stjórn mannsins. Um leið eru verkin

jarðbundin, full af barnslegum uppruna og sköpunarsögu. Við fæðumst, leikum okkur saman
og sundur, hreyfumst með, feykjumst og fælumst undan veðrum í viðsjálum heimi. Líklegast
eru dúkkurnar að fjölga sér eins og mannkyn, skordýr, sveppir, örverur og það er falin bæði
fegurð og óhugnaður í þeirri staðreynd og framsetningu verkanna.

Hjörtur Matthías Skúlason er fæddur á Patreksfirði 1979 og ólst upp á Rauðasandi í
Vesturbyggð. Hann lauk fornámi við Myndlistarskólann í Reykjavík áður en hann hóf nám í
Listaháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 2013 með BA gráðu í vöruhönnun. Sérkenni
Hjartar síðast liðin ár eru manngerðir skúlptúrar hans, handsaumaðar dúkkur sem minna
okkur á hlutskipti mannsins og tengsl við náttúruna, fegurð og óhugnað, en í tvívíðum
myndverkum verður líkami dúkkunnar að kyrrstæðri spennu, krafti sem býr undir niðri,
munúðarfullu landslagi.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page