top of page

Hjörtur Matthías Skúlason: Spegill

508A4884.JPG

fimmtudagur, 18. janúar 2024

Hjörtur Matthías Skúlason: Spegill

Hjörtur Matthías Skúlason, opnar sýningu á Mokka, 18. janúar kl. 16. Sýningin stendur til 21. febrúar n.k.

Manninum er einlægt að spegla sjálfan sig í því sem á vegi hans verður og þá sérstaklega í þeim manneskjum sem hann hittir. Sjálfsmat hvers og eins spilar stóra rullu í upplifun spegilmyndar og því upplifun hvers og eins einstök. Spegilmynd er því ekki alltaf raunspeglun af því sem fyrir augu ber, hvort það sé hin raunverulega spegilmynd eða samanburður sjálfsmyndar við aðra hluti í veröldinni.

Rauður þráður í mínum verkum er skilgreyning á hegðun. Eginlega perforamtívt án þess að vera performans, stillimynd af hegðun. Sviðsetning hegðunar á mjög hljóðlátan hátt. Kynleysi skúlptúranna er ríkjandi, dúkkur sem þrá með sínar leitandi hendur eins og ég og þú, þrá eftir samruna, heild. Að heimurinn verði heill, einn daginn. Um leið eru verkin jarðbundin, full af barnslegum uppruna og sköpunarsögu. Líklegast eru dúkkurnar að fjölga sér eins og mannkyn, skordýr, sveppir, örverur og það er falin bæði fegurð og óhugnaður í þeirri staðreynd og framsetningu verkanna.

Manngerðir skúlptúrar, handsaumaðar dúkkur sem minna okkur á hlutskipti mannsins og tengsl við náttúruna, fegurð og óhugnað, en í tvívíðum myndverkum verður líkami dúkkunnar að kyrrstæðri spennu, krafti sem býr undir niðri, munúðarfullu landslagi.

Þetta er í rauninni félagslegt ummfjöllunarefni en verkið (dúkkan) stendur á endanum ein eftir sem holdgerfingur mannlegrar hegðinar.

Hjörtur Matthías Skúlason er fæddur á Patreksfirði 1979 og ólst upp á Rauðasandi í Vesturbyggð. Hann lauk fornámi við Myndlistarskólann í Reykjavík áður en hann hóf nám í Listaháskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 2013 með BA gráðu í vöruhönnun. Sérkenni Hjartar síðast liðin ár eru manngerðir skúlptúrar hans, handsaumaðar dúkkur sem minna okkur á hlutskipti mannsins og tengsl við náttúruna, fegurð og óhugnað, en í tvívíðum myndverkum verður líkami dúkkunnar að kyrrstæðri spennu, krafti sem býr undir niðri, munúðarfullu landslagi.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page