top of page

Helgi Vignir Bragason: Minningar annarra

508A4884.JPG

miðvikudagur, 29. apríl 2026

Helgi Vignir Bragason: Minningar annarra

02.05.-26.07.2026
Opnun 2. maí kl. 14:00-17:00

(English below)
Verið velkomin á opnun einkas‎ýningar Helga Vignis Bragasonar, Minningar annarra / Other people´s memories laugardaginn 2. maí kl. 14:00-17:00. Sýningin markar opnun nýs sýningarstaðar LY Contemporary á dönsku eyjunni Møn, rekinn af íslensku listamönnunum Ingunni Fjólu Ing‏þórsdóttur og Helga Vigni Bragasyni.
---
Húsið geymir minningar. Veggirnir hafa drukkið í sig tilfinningar, ást, undrun, samkennd, vellíðan, en mögulega einnig örlitla reiði, afbrýðisemi og áhyggjur. Ég finn það þegar ég strýk fingrunum eftir veggjunum, finn fyrir fíngerðum hrukkum í mjúkum viðnum, dreg fæturna eftir örlitlum bugðum á spónarplötunni og anda að mér lyktinni sem sest hefur að í rýminu. Þetta er lykt af ryki, sólargeisla, gamalli málningu, kertavaxi og kærleika. Hljóðið sem myndast þegar þykkir ullarsokkarnir snerta gólfið fyllir rýmið stundarkorn, svo fuglasöngur fyrir utan, bíll á hraðferð eftir veginum.

Í ljósmyndaverkinu Minningar annarra (Other people’s memories) vinnur Helgi Vignir með hugmyndina um hvort og hvernig sé hægt að nálgast og virða fyrir sér líf og minningar annarra í gegnum hluti og efnisleg ummerki sem fólk skilur eftir sig eftir að það hverfur á brott. Vorið 2025 flutti Helgi Vignir ásamt fjölskyldu sinni á gamalt sveitabýli á Møn. Þegar Helgi Vignir fór að taka til í hlutum sem fyrri eigendur höfðu skilið eftir fór hann að velta fyrir sér hvernig hlutir geyma í sér ummerki um horfið líf og minningar þess sem áttu hlutina. Hvaða þýðingu höfðu þessir hlutir fyrir fjölskylduna á sínum tíma, hvaða minningar fela þeir í sér og hvaða sögu hafa þeir að segja? Í stað þess að fara með hluti, sem ekkert tilfinningalegt gildi og takmarkað notkunargildi höfðu fyrir nýja eigendur, í endurvinnslu eða henda þeim í ruslið ákvað Helgi Vignir að nálgast þá af forvitni og umhyggju. Hann tók þá einn af öðrum með sér inn á vinnustofu sína, raðaði þeim upp og ljósmyndaði af alúð og nærgætni.

Á ljósmyndum Helga Vignis sjáum við ýmiss konar verkfæri, hluti sem tengjast ólíkum áhugamálum og aðra muni sem varpa ljósi á fyrrum eigandur og líf þeirra. Helgi myndar þá eina sér á hvítum eða svörtum bakgrunni, beitir lýsingu meðvitað til að skapa dulúð á sumum myndum en hlutleysi á öðrum. Vinnuhanskar og garðarhanskar af ólíku tagi bera með sér ummerki um mannshönd. Forvitni okkar vaknar. Hver klæddist þessum hönskum og við hvaða tilefni? Hvers vegna geymdi fjölskyldan gamalt eintak af skáldsögunni Dune á háaloftinu? Hvers vegna var lítill fjögurra reita töfrateningur eftir þegar öðrum munum var pakkað saman? Hvers vegna geymir mannveran eitt og hendir öðru?

Útdráttur úr s‎ýningartexta eftir Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur

Helgi Vignir Bragason

Helgi Vignir Bragason (f. 1972) er íslenskur myndlistarmaður búsettur á Møn. Í verkum sínum kannar Helgi Vignir manngerð umhverfi og viðfangsefni tengd nýtingu, ofnýtingu og mengun. Verk hans hafa verið sýnd á galleríum og söfnum á Íslandi, en nýlegar einkasýningar eru Kyrr lífsferill í Hafnarborg – menningar- og listamiðstöð (2025), og ÁBATI – hugleiðing um efni í Slökkvistöðinni (2024).

Helgi Vignir lauk námi í skapandi ljósmyndun frá Ljósmyndaskólanum árið 2023, en hann hafði áður lokið M.Sc. námi í framkvæmdastjórinun frá Háskólanum í Reykjavík (2013) og B.Sc. gráðu í byggingafræði frá Vitus Bering CVU í Horsens, Danmörku (2003). Hann er félagi í SÍM – Sambandi íslenskra myndlistarmanna, FÍSL – Félagi íslenskra samtímaljósmyndara og BKF – Billedkunstnernes Forbund í Danmörku.

//

Helgi Vignir Bragason
Other people´s memories
02.05.-26.07.2026
Opening May 2nd from 2-5pm

Welcome to the opening of Other People’s Memories, a solo exhibition by Helgi Vignir Bragason, on the 2nd of May from 2-5pm. The exhibition marks the opening of LY Contemporary, a new artist-run space on the Danish island Møn, initiated by the Icelandic artists Ingunn Fjóla Ing‏þórsdóttir and Helgi Vignir Bragason.
---
The house holds memories. The walls have absorbed emotions - love, wonder, empathy, pleasure and perhaps also a trace of anger, jealousy, and worry. I feel it as I run my fingers along the walls, sensing the fine wrinkles in the soft wood, dragging my feet across the subtle curves of the chipboard, breathing in the scent that has settled in the room. It is a smell of dust, sunlight, old paint, candle wax, and care. The sound of thick wool socks brushing the floor fills the room for a moment, then birdsong outside, a car rushing down the road.

In the photographic work Other People’s Memories, Helgi Vignir explores whether and how it is possible to approach and contemplate the lives and memories of others through the objects and material traces they leave behind. In the spring of 2025, he and his family moved to an old farmhouse on Møn. As Helgi Vignir began clearing up items the previous owners had left behind, he started to reflect on how objects carry traces of a life that has disappeared and the memories of those who once owned them. What meaning did these objects have for the family back then, what memories do they contain and what stories do they tell? Rather than discarding the items, that held little emotional or practical value for the new owners, he chose to approach them with curiosity and care. One by one, he brought them into his studio, arranged them, and photographed them with sensitivity and tenderness.

In Helgi Vignir’s photographs we see various tools, objects related to diverse hobbies, and other items that shed light on their previous owners and their lives. He photographs them individually against white or black backgrounds, using light deliberately to create mystery in some images, neutrality in others. Work gloves and gardening gloves of various kinds bear traces of the human hand. Our curiosity is awakened: who wore these gloves, and on what occasions? Why did the family keep an old copy of the novel Dune in the attic? Why was a small four-panel Rubik’s cube left behind when other belongings were packed away? Why do we keep some things and throw others away?

Excerpt from the exhibition text by Sigrún Alba Sigurðardóttir

Helgi Vignir Bragason

Helgi Vignir Bragason (b. 1972) is an Icelandic visual artist based on Møn. In his works, Helgi Vignir explores man-made environments and issues related to utilization, exploitation, and pollution. His work has been exhibited in galleries and museums in Iceland, with recent solo exhibitions including Still Lifespan at Hafnarborg – Centre of Culture and Fine Art (2025), and BENEFIT – A Reflection on Materials at Slökkvistöðin in Reykjavík (2024).

Helgi Vignir has a diploma in creative photography from the School of Photography (2023). He previously completed an M.Sc. in Executive Management from Reykjavík University (2013) and a B.Sc. in Constructing Architecture from Vitus Bering CVU in Horsens, Denmark (2003). He is a member of SÍM – The Association of Icelandic Visual Artists, FÍSL – The Icelandic Contemporary Photography Association, and BKF – The Danish Visual Artists’ Association.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page