top of page

Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson opna sýningu
í Gallerí Undirgöng

508A4884.JPG

fimmtudagur, 30. mars 2023

Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson opna sýningu
í Gallerí Undirgöng

Laugardaginn 1. apríl ​​opnar sýning Helga Hjaltalíns Eyjólfssonar og Péturs Arnar Friðrikssonar MARKMIÐ XVI í Gallerí Undirgöng við Hverfisgötu 76 í Reykjavík.
Sýningin er nýjasta afurð samstarfs listamannana sem teygir sig yfir tvo áratugi og hófst með sýningunni Markmið I í Gallerí Hlemmur í Reykjavík um aldamótin. Verk þeirra sem samanstanda af skrásettum gjörningum og tilraunum, skúlptúrum, ljósmyndum, og myndböndum hafa síðan verið sýnd víða, meðal annars í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Akureyrar, Listasafni Íslands, Kling og Bang, Museum for Contemporery Art í Sydney, Goethe Institute í New York, Motorenhalle í Dresden svo eitthvað sé nefnt.
Samstarf þeirra Helga og Péturs einkennist af leikgleði og uppáfinningarsemi þar sem ákveðin afbygging á karlmennskutengdri tækjadellu á sér stað. Þeir búa til furðutæki og farskjóta fyrir ómögulegar aðstæður, verkfæri sem hafa takmarkað notagildi og framkvæma óskilgreinanlegar athafnir . Tilgangur athafnanna getur virst óljós en markmið þeirra Helga og Péturs virðist oftar en ekki vera ferðalag - hvort sem það er ferð myndbandstökuvélar niður fjallshlíð eða ferðalag ýmisskonar farartækja sem knúin eru áfram af ímyndunaraflinu. Verkin taka óvænta stefnu, undirbúningurinn verður niðurstaðan, hætt er í miðjum klíðum, allt gengur upp, eitt kveikir annað og tengist með óskýranlegum hætti aftur eða fram í tímann eftir atvikum.
Fyrir sýninguna í Gallerí Undirgöng hafa listamennirnir aðlagað skrásetningu gjörnings að sýningarrýminu í anda þess samtals sem verk þeirra eiga ávallt í við áhorfendur við ólíkar aðstæður.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page