top of page

Heldur það sem verður eftir Í Höggmyndagarðinum

508A4884.JPG

fimmtudagur, 7. september 2023

Heldur það sem verður eftir Í Höggmyndagarðinum

Samsýning Alexanders Hugos Gunnarssonar og Sölva Steins Þórhallssonar opnar 9. september næstkomandi í Höggmyndagarðinum og er afrakstur eins árs samstarfsverkefnis listamannana. Í samstarfinu hafa þeir skoðað uppsprettu hugmynda og sent kveikjur á milli sín í þeirri von um að veita hvorum öðrum innblástur sem síðan gæti nýst til sköpunnar. Þeir hafa velt fyrir sér leiðbeiningum, samskiptum, skilning og misskilning ásamt því að senda hvorum öðrum hugleiðingar um tilveruna sem hafa staðið þeim nærri og verið þeim ofarlega í huga. Innihald sýningarinnar mun því koma til með að hafa rauðan þráð, sem hefur verið sendur fram og tilbaka, oft og mörgum sinnum og tekið á sig mynd í formi vídeóverka, skúlptúra og ljósmynda sem verða til sýnis í Höggmyndagarðinum.

Um listamennina:
Alexander Hugo Gunnarsson útskrifaðist með BA við myndlist úr Listaháskóla Íslands árið 2020 og hefur síðan þá starfað sem handverksmaður í Bretlandi og á Íslandi. Í gegnum það endurspeglunar tímabil hefur hann séð sig dreginn fyrst og fremst að efniviðnum og mismunandi aðferðum sköpunar og hönnunar. Með þessu fann hann nýjar leiðir til þess að nálgast og framkvæma hugmyndir sínar, nýjar sem gamlar. Hann vinnur í skúlptúra og innsetningar þar sem reynt er að fanga rómantík augnabliks og leyfa áhorfendum að staldra við í þeim.

Sölvi Steinn Þórhallsson útskrifaðist með BA við myndlist úr Listaháskóla Íslands árið 2020 og hefur verið meðlimur Kling & Bang síðan í október 2020 ásamt því að stofna og reka listamannarekna rýmið King og Bong frá nóvember sama ár. Í verkum sínum fæst hann við persónulegar frásagnir og veltir fyrir sér tilgangi, tilgangsleysi og orsök atburða og hluta í kringum sig og vinnur ýmist í vídeó, skúlptúr og innsetningar.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page