top of page
Heimar - Jón Thor Gíslason í Gallerí Gróttu
þriðjudagur, 18. apríl 2023
Heimar - Jón Thor Gíslason í Gallerí Gróttu
Jón Thor Gíslason opnar sýningu í Gallerí Gróttu miðvikudaginn 19. apríl kl. 17-18:30. Þar sýnir listamaðurinn nokkur verka sinna, málverk og teikningar.
Viðfangsefnið er manneskjan sem sjálfsvera og sú firring sem lengi hefur átt sér stað gagnvart henni sem slíkri.
Á sýningunni er mælt með að nálgast verkin á líkamlegan, sjónrænan hátt, en þannig höfum við möguleika á því að upplifa listaverkið milliliðalaust sem persónubundna reynslu sem á sér stað, ef svo má segja, áður en við erum byrjuð að velta verkinu meðvitað fyrir okkur.
Opið alla virka daga 10-18:30, föstudaga 10-17 og laugardaga 11-14.
Opið eftirfarandi helgar: 29. og 30. apríl og 6., 7. og 13. maí kl. 14-18.
bottom of page