Heidi Strand sýnir um 20 ný textílverk í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg

fimmtudagur, 5. júní 2025
Heidi Strand sýnir um 20 ný textílverk í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg
Heidi Strand er fædd í Noregi en hefur búið á Íslandi frá því um tvítugt. Hún var í listnámi í Noregi og náði þar fljótt góðum tökum á textil af ýmsu tagi.
Heidi hélt sína fyrstu einkasýningu í Ásmundarsal árið 1982. Síðan þá hefur hún haldið einkasýningar á Norðurlöndum öllum og þetta er þriðja árið í röð sem hún sýnir í Listhúsi Ófeigs við góðar undirtektir. Heidi hefur einnig tekið þátt í fjölmörgum sam- og farandsýningum í bæði Evrópu, Bandaríkjunum og Japan, þar sem alþjóðlegar dómnefndir velja verkin, og hafa sumar þessara sýninga farið víða um lönd. Nú er í gangi farandsýning í Bandaríkjunum þar sem Heidi á verk.
Heidi hefur náð alveg sérstökum tökum á nálaþæfingu og í Listhúsi Ófeigs sýnir hún myndverk af ýmsum stærðum tengd íslenskri náttúru, bæði af kindum en ekki síður af fuglum sem hafa lengi verið henni hugleiknir. Öll verkin á sýningunni eru unnin í ár eða í fyrra.
Sýningin er opin á opnunartíma Gullsmiðju Ófeigs, það er virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 frá 7. til 30. júní nk. og er aðgangur ókeypis.
Heidi er félagi í Textílfélaginu og SÍM auk bandarísku samtakanna SAQA.