top of page

Heidi Strand sýnir rúmlega 20 ný textílverk í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg

508A4884.JPG

fimmtudagur, 1. ágúst 2024

Heidi Strand sýnir rúmlega 20 ný textílverk í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg

Heidi Strand er fædd í Noregi en hefur búið á Íslandi frá því um tvítugt. Hún var í listnámi í Noregi og náði þar fljótt góðum tökum á textil af ýmsu tagi.

Heidi hélt sína fyrstu einkasýningu í Ásmundarsal árið 1982. Síðan þá hefur hún haldið einkasýningar á Norðurlöndum öllum og er sýningin í Listhúsi Ófeigs sú 30. í röðinni. Hún hefur einnig tekið þátt í fjölmörgum sam- og farandsýningum í bæði Evrópu, Bandaríkjunum og Japan, þar sem alþjóðlegar dómnefndir velja verkin, og hafa sumar þessara sýninga farið víða um lönd.

Heidi hefur náð alveg sérstökum tökum á nálaþæfingu og í Listhúsi Ófeigs sýnir hún myndverk af ýmsum stærðum tengd íslenskri náttúru, bæði af kindum en ekki síður af fuglum sem hafa lengi verið henni hugleiknir. Nær öll verkin á sýningunni eru unnin í ár eða i fyrra.

Sýningin verður opin virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 frá 13. júlí til 7. ágúst nk. og er aðgangur ókeypis.

Heidi er félagi í Textílfélaginu og SÍM auk bandarísku samtakanna SAQA.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page