Heidi og fuglarnir

fimmtudagur, 3. september 2026
Heidi og fuglarnir
Minningarsýning á verkum textíllistakonunnar Heidi Strand verður opnuð í Útúrdúr Textílrými á Korpúlfsstöðum.
Sýningin stendur yfir dagarna fimmtudaga, föstudaga, laugardaga og sunnudaga
kl. 14–17 til 27 September.
Heidi Strand fæddist í Noregi árið 1953 en bjó flest sín fullorðinsár á Íslandi. Hún sótti listnám í Þrándheimi og eftir það ýmis námskeið til þess að tileinka sér nýmæli og eflast í list sinni.
Saumar og handíðir af því tagi áttu lengi hug hennar allan en smám saman yfirtók ullarþæfingin, bæði votþæfing grunna og loks nálaþæfing myndefnisins sjálfs. Innblástur sótti hún að miklu leyti í íslenska náttúru sem hún unni mjög og hafði stundum áhyggjur af að fengi ekki að lifa í friði. Verkin voru af öllum stærðum, allt frá smáverkum og upp í mjög stór verk 5 til 6 fermetra að flatarmáli.
Heidi hélt sína fyrstu einkasýningu í Ásmundarsal árið 1982 en þær urðu alls 32, auk þess átti hún verk á tugum samsýninga og farandsýninga víða um heim. Myndir af verkum hennar hafa birst í fjölmörgum blöðum og tímaritum en umfjöllun íslenskra fjölmiðla um líf hennar og starf má finna á
Íslensk fuglabjörg og heimkynni vöktu mikla athygli hennar og á tímabili var hún kölluð „The Bird Lady“ af öðrum listakonum sem unnu með sama efnivið. Við tókum því þá ákvörðun að gera fuglamyndir hennar að aðalþema þessarar sýningar.
Síðasta áratuginn var hún mjög upptekin af kríum og þeim fyrirgangi sem oft einkennir þær, auk þess sem sauðfé heillaði hana mjög og gerði hún tugi ef ekki hundruð verka með ásýnd þeirra. Eitt sinn birti hún mynd af kind á fésbókarsíðu sinni og fékk ávítur frá umsjónarmönnum þar, þeir héldu að hún væri að selja fé á fæti en það er stranglega bannað!
Heidi Strand veiktist skyndilega í janúar 2026 og lést í Reykjavík eftir stutta sjúkdómslegu.
https://matti.wordpress.com/ Ferilskrá hennar má svo finna á www.heidistrand.com
