top of page

Haustúthlutun úr Myndlistarsjóði 2026

508A4884.JPG

fimmtudagur, 12. nóvember 2026

Haustúthlutun úr Myndlistarsjóði 2026

Logi Einarsson, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, og Sigrún Inga Hrólfsdóttir, formaður myndlistarráðs, afhentu myndlistarfólki styrki úr myndlistarsjóði 5. nóvember 2026. Alls var 32 milljónum króna úthlutað til 48 verkefna.
Myndlistarsjóði bárust 158 umsóknir og sótt var um styrki fyrir 199 milljónir króna 
Veittir voru styrkir í tveimur flokkum: 
Útgáfu- rannsóknar- og aðrir styrkir
Sýningarstyrkir

Útgáfu-, rannsóknar- og aðrir styrkir 
44 umsóknir bárust  
13 verkefni hlutu styrk fyrir alls kr. 8.600.000 
Sýningarstyrkir
114 umsóknir bárust  
35 verkefni hlutu styrk fyrir alls kr. 23.400.000

Hæstu styrkina hlutu: 
Nýlistasafnið hlaut kr. 2.000.000 fyrir Vetrardagskrá Nýlistasafnsins: Þrjár sýningar 
Norræna húsið hlaut kr. 1.500.000 fyrir samsýningunni Southnord
Listasafn Ísafjarðar hlaut 1.500.000 fyrir sýningum í Listasafni Ísafjarðar  
Kling & Bang hlaut kr. 1.500.000 fyrir samsýninguna Að halda, að gefa, að þiggja 
Agnieszka Eva Sosnowska hlaut kr. 1.400.000 fyrir útgáfu bókarinnar Stattu bein, stattu beinni
Hótel Djúpavík hlaut kr. 1.200.000 fyrir samsýninguna The Factory 2027 í Verksmiðjunni á Djúpavík 
Ásdís Mercedes Spanó hlaut kr. 1.000.000 fyrir útgáfu bókarinnar Suðurgata 7 – 50 ára 
Listasafn Árnesinga hlaut kr. 1.000.000 fyrir samsýninguna Please Repeat After Me 
Egill Sæbjörnsson hlaut 1.000.000 fyrir ýmsar sýningar 2027

39 önnur verkefni hlutu styrki að auki
 Í matsnefnd sátu Birgir Snæbjörn Birgisson, Dorothée Maria Kirch, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Æsa Sigurjónsdóttir úr myndlistarráði — gestir nefndarinnar voru Hildur Bjarnadóttir og Kristinn G. Harðarson. 
Fyrsta úthlutun myndlistarsjóðs var árið 2013 og frá upphafi hafa sjóðnum borist tæplega 4450 umsóknir. Síðustu ár hefur 724 milljónum króna verið úthlutað úr sjóðnum.   
Næsti umsóknarfrestur verður í febrúar, nánar auglýst síðar.  

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page