top of page

Hansína Jensdóttir / Þóra Sigurþórsdóttir: Jörð

508A4884.JPG

fimmtudagur, 18. júní 2026

Hansína Jensdóttir / Þóra Sigurþórsdóttir: Jörð

Sýningin Jörð beinir sjónum okkar að því sem vex upp úr moldinni og tekur á sig nýjar myndir. Í Grafíksalnum við Tryggvagötu efna þær Þóra Sigurþórsdóttir og Hansína Jensdóttir til fjölradda samtals um efniskennd, handverk og umbreytingu jarðefna. Þær vinna báðar með hefðbundin efni, Þóra með keramik en Hansína með kopar. Báðar vinnuaðferðirnar fela í sér umbreytingu með hita: brennslu og mótun á keramiki og mótun málma.

Ólíkur bakgrunnur Þóru og Hansínu skapar mismunandi raddir sem tala þó sama tungumál. Jörðin í sýningunni verður ekki í bakgrunni heldur forgrunni, sýningin er ferli, einhverskonar upphaf á dansspori áhorfandans sem skynjar sprungurnar í jarðveginum, þyngdina í leirnum, gljáann og holrýmið í málminum.

Í salnum mæta gestir verkum með myndum af jarðvegi, háum kertastjökum og skúlptúrum sem vísa til mannslíkamans. Efniskenndin mótar rýmið: Ker leysast upp í skúlptúra, kertastjakar minna á grískar súlur og hangandi rætur tengir okkur við móður Jörð. Líkt og heiti sýningarinnar gefur til kynna spretta verkin upp úr moldinni, þau hafa líkamleg áhrif á sýningargestinn með því að jarðtengja hann með formum sem skapa rýmiskennd. Listaverkin eru samt ennþá eins og fræ sem krefjast umönnunar og túlkunar áhorfandans.

Í þessari umbreytingu efnis verður til samlífi hugmynda sem spyr: Hverra spurninga spyr efnið? Og hvaða merking verður til þegar margar raddir tala á sama tíma?

Vilborg Bjarkadóttir.

Hansína Jensdóttir er bæði gullsmiður og skúlptúristi, hún hefur unnið mikið með silfur, gull og aðrar málmtegundir. Á þessar sýningu eru „rætur“ viðfangsefni Hansínu, efniviðurinn er kopar og járn og stundum notar hún sílíkon í verkum sínum. Skartgripir Hansínu eru til sölu hjá Ófeigi gullsmiðju við Skólavörðustíg.

Þóra Sigurþórsdóttir leirlistarkona hefur í áratugi unnið bæði nytjahluti og skúlptúra sem eru ýmist mótaðir eða renndir. Hún nýtir sér ýmsan efnivið, auk leirsins, til dæmis dýrahorn og hrosshár. Á þessari sýningu notar Þóra grafíska tækni, viðfangsefnið er sprunginn jarðvegur og grjót. Þóra starfrækir Gallerí Hvirfil í Mosfellsdal.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page