top of page

Hallgrímur Árnason opnar einkasýninguna Opnar skjöldur í Listval Gallery

508A4884.JPG

þriðjudagur, 15. ágúst 2023

Hallgrímur Árnason opnar einkasýninguna Opnar skjöldur í Listval Gallery

Föstudaginn 18. ágúst milli kl. 17-19 opnar einkasýning Hallgríms Árnasonar, Opnar skjöldur, í Listvali að Hverfisgötu 4.

Hallgrímur Árnason (f. 1988) býr og starfar í Vínarborg. Hann stundaði nám við Listaakademíuna í Vín, m.a. undir leiðsögn þýska listamannsins Daniel Richter. Í febrúar síðastliðnum opnaði hann sína fyrstu einkasýningu, Fehlerhaft [kœtlʏð], í Vínarborg. Sýningin Opnar skjöldur, er hans fyrsta sýning á Íslandi.

Verkin á sýningunni fjalla um tilfinningalega afstöðu og viðbrögð Hallgríms við stað og stund og sýna áköf form, liti og línur spretta fram og breiða úr sér. Orka, hvatvísi og undarlegt jafnvægi kyrrðar og óreiðu einkenna myndflöt Hallgríms. Hann leyfir því óvænta að taka völdin. Eitt hugskot verður að hreyfingu, athöfn að hugskoti, eitt leiðir af öðru. Við horfum inní fjölskrúðugan hugarheim listamannsins, afstæða tilveru, og látum hugann reika, rétt á meðan við gleymum okkar eigin stað og stund.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page