Hallgerður Hallgrímsdóttir : SKUGGSILFUR / SHADOW RECOVERY

þriðjudagur, 6. október 2026
Hallgerður Hallgrímsdóttir : SKUGGSILFUR / SHADOW RECOVERY
Gallerí Úthverfu, Isafirði Opnun fimmtudaginn 8 október kl 16:00
Sýningin stendur yfir 8.10 - 01.11 2026
Listakonan verður á staðnum og boðið verður uppá léttar veitingar og spjall.
SKUGGSILFUR
Pínulítill silfurmoli er stjarna sýningarinnar. Míníatúr skuggaskúlptúr. Ljósnæmi silfurs felur í sér upphaf ljósmyndunar: ljóseindir hitta silfurhalíð og fá þau til að dansa. En jafnmikilvægar í hverri mynd eru eyðurnar, skuggarnir, þar sem silfrið leysist upp og situr eftir í fixernum. Fljótandi eðalmálmur sem mettar vökvann.
Verkið er í senn ljósmyndasería og höggmynd. Myndirnar analóg skráning á ferlinu við að sækja óvirkjað silfur úr fixernum, ferli sem þær eru sjálfar hluti af, lína sem liggur í hring. Silfurmolinn er samansafn ljósleysisins, skuggarnir eimaðir niður í áþreifanlegan hlut með efnafræði og eldi, ediki, stálull og kaffifilterum.
Hallgerður Hallgrímsdóttir (f. 1984) er myndlistarkona og býr og starfar í Reykjavík. Hún er með MFA frá Akademin Valand í Gautaborg, þaðan sem hún lauk námi 2019. Áður nam hún við myndlist með áherslu á ljósmyndun við Glasgow School of Art. Verk hennar hafa farið víða og verið sýnd meðal annars í The Photographer’s Gallery í London, Hasselblad Center í Gautaborg, í Listasafninu á Akureyri, Listasafni Færeyja, Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands og Fotografisk Center í Kaupmannahöfn.
Nýjasta ljósmyndabók Hallgerðar, dauðadjúpar sprungur, kom út í lok árs 2024 hjá Blackbook Publishing í Gautaborg.
SHADOW RECOVERY
A morcel of silver is the star of the exhibition. A miniature sculpture of accumulated shadows. The photosensitivity of silver marks the genesis of photography: photons encounter silver halides causing them the crystals to dance together. Equally vital to each image are the unexposed areas, the shadows, where the silver washes away in the fixer, a precious metal saturating the liquid.
The work is simultaneously a photographic series and a sculpture. The images are an analogue record of the process of extracting unexposed silver from fixer, playing the part of both subject and method. The silver morcel embodies the absence of light, the shadows distilled into a tangible object through chemistry and fire, with the aid of vinegar, steel wool, and coffee filters.
Hallgerður Hallgrímsdóttir was born 1984 in Reykjavik and is currently living and working in Reykjavik. She graduated as a Master of Fine Arts from Valand Academy in Gothenburg, Sweden, in 2019. Previously she studied her BA in Fine Art Photography at Glasgow School of Art. In the past years Hallgerður has exhibited work in various places, such as The Photographer's Gallery in London, Hasselblad Center in Gothenburg, Reykjavik Art Museum, The National Gallery of Iceland and Fotografisk Center in Cophenhagen.
Hallgerður’s photobook, dauðadjúpar sprungur, was released in 2024 with Blackbook Publishing in Gothenburg.
www.hallgerdur.com
