Hallgerður Hallgrímsdóttir og Nina Zurier - Sjónarvottur

fimmtudagur, 16. janúar 2025
Hallgerður Hallgrímsdóttir og Nina Zurier - Sjónarvottur
Næstkomandi föstudag kl.18 opnar ný sýning í BERG Contemporary sem ber titilinn Sjónarvottur og samanstendur af nýjum ljósmyndaverkum eftir Hallgerði Hallgrímsdóttur og Ninu Zurier. Sýningin er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands sem hefur göngu sína þennan sama dag, en sýningin stendur til og með 22. febrúar 2025.
Verk Hallgerðar sem til sýnis verða eru hluti af seríu sem ber titilinn Ósýnilegt stríð / Sýnilegt stríð og byggir á fundnum stereógrafíum sem teknar voru á glerplötur í fyrri
Heimsstyrjöldinni, auk litmynda af gróðri sem Hallgerður tók á virkiseyjum Suomenlinna í Helsinki.
Nina sýnir verk úr seríu sinni Gervi landslag sem samanstendur af ljósmyndum búnum til með aðstoð gervigreindar, þar sem hún varpar fram áleitnum spurningum um höfundarrétt og þróun ljósmyndarinnar sem miðils í sögulegu samhengi. Endurtekning, orðaval og skipanir myndhöfundar skapa ímyndað myndefnið á ljósmyndunum, og má því segja að hún fangi ljósmyndir af því sem ekki fyrirfinnst í raunveruleikanum.
Titill sýningarinnar, Sjónarvottur, vísar því annars vegar í iðju ljósmyndarans, hvort sem hann mundar vélina, dregur gamlar myndir fram í dagsljósið eða skapar þær með gervigreindarforriti. Þó gjarnan sé talað um hlutlaust vitni, vott, er ljósmyndari það sjaldnast heldur hefur hann vald þess sem skráir söguna. Við erum öll sjónarvottar líðandi stundar.