top of page

Halldór Björn Runólfsson : Spjall um Nínu Sæmundsson

508A4884.JPG

fimmtudagur, 17. september 2026

Halldór Björn Runólfsson : Spjall um Nínu Sæmundsson

Sunnudaginn 20. september kl. 14 verður Halldór Björn Runólfsson, listfræðingur og fyrrverandi safnstjóri Listasafns Íslands, með spjall um Nínu Sæmundsson í Listasafni Reykjanesbæjar.

Halldór þekkir vel til verka Nínu og var safnstjóri Listasafns Íslands þegar þar var haldin stór yfirlitssýning á verkum hennar árið 2015. Í spjallinu mun hann fjalla um Nínu í listrænu samhengi, stöðu hennar innan íslenskrar listasögu og hvernig verk hennar og arfleifð geta tekið á sig nýja merkingu í samtímanum og til framtíðar.

Spjallið fer fram inni á sýningunni Nína, okkar kærasta Nína, þar sem verk Nínu eru sett í samtal við verk samtímalistafólks og saga hennar skoðuð frá nýjum sjónarhornum.

Öll velkomin og aðgangur ókeypis.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page