top of page

Hafnarborg: Leiðsagnir um nýjar sýningar

508A4884.JPG

föstudagur, 26. nóvember 2021

Hafnarborg: Leiðsagnir um nýjar sýningar

Söngfuglar - Listamanns- og sýningarstjóraspjall
laugardaginn 27. nóvember kl. 14
Katrín Elvarsdóttir, listamaður, og Daría Sól Andrews, sýningarstjóri sýningarinnar, taka á móti gestum og segja frá sýningunni Söngfuglum, sem stendur nú yfir í Sverrissal Hafnarborgar.
Á sýningunni má sjá ný verk eftir Katrínu frá því að hún heimsótti eyna Kúbu. Þar gekk hún um götur Havana með myndavélina að vopni en hún tók sérstaklega eftir því að margir eyjarbúar halda söngfugla í búrum á heimilum sínum. Vekur þessi siður jafnvel upp spurningar um frelsi og frelsisskerðingu en saga eyjarinnar hefur til langs tíma einkennst af höftum og einangrun.
Frekari upplýsingar á www.hafnarborg.is

Lengi skal manninn reyna - Sýningarstjórsapjall
sunnudaginn 28. nóvember kl. 14

Ágústa Kristófersdóttir, sýningarstjóri og fyrrverandi forstöðumaður Hafnarborgar, tekur á móti gestum og segir frá sýningunni og lífi og list Þorvalds Þorsteinssonar á þessari yfirlitssýningu verka hans. Sýningin er í sýningarstjórn Ágústu Kristófersdóttur og Guðrúnar Pálínu Guðmundsdóttur en hún var unnin í samstarfi við Listasafnið á Akureyri og eignasafn Þorvaldar Þorsteinssonar.

Á sýningunni getur að líta fjölbreytt úrval verka; skúlptúra, innsetningar, málverk og myndbandsverk og fleira sem varpa ljósi á þennan fjölhæfa listamann og það hvernig hann vann verk sín í tengslum við samfélagið.
Frekari upplýsingar á www.hafnarborg.is

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page