Hafnarborg: Heiðvirðir einstaklingar og Bergmál

þriðjudagur, 3. mars 2026
Hafnarborg: Heiðvirðir einstaklingar og Bergmál
Opnun : Laugardaginn 7. mars kl. 15:00.
Hafnarborg býður fólk hjartanlega velkomið á opnun sýninganna Heiðvirðra einstaklinga eftir þau Weroniku Balcerak og Lukas Bury og Bergmáls eftir Rögnu Fróða. Þá mun Maciej Duszyński, sendifulltrúi hjá Sendiráði Lýðveldisins Póllands í Reykjavík flytja ávarp við opnunina og nýtur viðburðurinn sérstaks stuðnings frá sendiráðinu.
Weronika Balcerak & Lukas Bury: Heiðvirðir einstaklingar
Sýningin hverfist um langvarandi og lítt rædd samskipti milli Póllands og Íslands í gegnum tíðina – sem hófust með viðskiptum löngu áður en Pólverjar urðu stærsti hópur innflytjenda á Íslandi. Listamennirnir Weronika Balcerak og Lukas Bury vinna með miðla eins og útsaum, vídeó og málverk en með því að sameina sögulegar heimildir við hugleiðingar um lífið á líðandi stundu setja þau þessi margslungnu menningartengsl í nýtt samhengi. Sýningin varpar þannig ljósi á hvernig hversdagslegir hlutir, vinnuafl og efnahagsleg tengsl hafa haft áhrif á Ísland og Pólland í nær heila öld – og dregur upp mynd af sambandi sem hófst löngu fyrir nútímafólksflutninga og mótar bæði löndin enn þann dag í dag.
Sýningarstjórar eru Aldís Arnardóttir og Hólmar Hólm.
Lukas Bury (f. 1991) og Weronika Balcerak (f. 1996) mynda saman listamannatvíeykið Austur-Íslendinga. Nafnið hefur sögulega tilvísun til Vestur-Íslendinga, sem fluttu á sínum tíma vestur um haf og hófu nýtt líf, og kallar þannig fram spurningar um um það að koma til nýs lands, setjast að og tilheyra. Í listsköpun sinni vinna þau að myndrænum vettvangsrannsóknum sem þau miðla með innsetningum, textílverkum, vídeó og málverkum. Þá byggja þau á löngum ferlum þar sem úrvinnslan og sjálft samhengið fléttast saman og persónuleg reynsla mætir sögulegum tilvísunum. Verk þeirra einkennast af ígrunduðu efnisvali og tengingu við stað. Þá beina þau sjónum að því hvernig merking verður til í gegnum návist, endurtekningu og sameiginlegt rými.
Ragna Fróða: Bergmál
Á sýningunni býður Ragna Fróða okkur inn í töfrandi heim mynstra, lita, forma og áferða. Heimur Rögnu er í senn kunnuglegur og framandi, nostalgískur og nýstárlegur. Upphafspunktur verkanna á sýningunni eru blekteikningar sem unnar eru í flæði og í beinu samtali milli undirmeðvitundar og handar. Í gegnum marglaga vinnuferli umbreytist hin óhefta lína frá handgerðri teikningu yfir í stafrænt útsaumuð verk sem birtast á mörkum hins óhlutbundna og fígúratífa. Verk Rögnu snúast um sköpunarferlið sjálft – samspil lita, áferða og sagna sem felast í mynstrum og táknum textílsins. Með því að sameina hefðbundið handverk og nútímatækni leitast Ragna við að víkka út mörk handverks, textílhönnunar og myndlistar.
Sýningarstjóri er Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir.
Ragna Fróða (f. 1970) er myndlistarkona, sýningarstjóri og kennari. Ragna lærði fata- og textílhönnun í París á árunum 1992-1995 og nam síðan við textíldeild Myndlista- og handíðaskólans 1996-1998. Hún hefur starfað víða erlendis en síðastliðin fimmtán ár hefur hún búið til skiptis í New York, Berlín og Reykjavík og komið víða að verkefnum tengdum list, hönnun og menningu. Ragna var um árabil deildarstjóri textíldeildar Myndlistaskólans í Reykjavík og formaður Textílfélagsins. Undanfarin ár hefur hún verið búsett í New York þar sem hún rekur eigin vinnustofu samhliða starfi sem framkvæmdastjóri Edelkoort Inc. og New York Textile Month. Hún hefur hlotið ýmsa styrki fyrir listræna starfsemi sína og framlag til lista og menningar. Verk hennar hafa verið sýnd á Íslandi, í Evrópu og Bandaríkjunum.
Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.
[ENGLISH]
Opening – Some Honest Persons and Echo
Saturday March 7th at 3 p.m., we invite you to the opening of the exhibitions Some Honest Persons, by Weronika Balcerak and Lukas Bury, and Echo, by Ragna Fróða. The opening will include an address by Maciej Duszyński, Chargé d’Affaires, Embassy of the Republic of Poland in Reykjavík, and the opening event is supported by the Embassy of the Republic of Poland.
Weronika Balcerak & Lukas Bury: Some Honest Persons
The exhibition looks at the long, often overlooked history connecting Poland and Iceland – one that began with trade long before Poles became the largest immigrant population in Iceland. By working with embroidery, video and painting and by combining archival materials with contemporary reflections, artists Weronika Balcerak and Lukas Bury revisit this unexpected cultural overlap. The exhibition highlights how everyday objects, labour and economic entanglements have influenced Iceland and Poland for nearly a century, revealing a relationship that began long before EU migration – and that continues to shape both countries today.
Curated by Aldís Arnardóttir and Hólmar Hólm.
Lukas Bury (b. 1991) and Weronika Balcerak (b. 1996) form the Reykjavík-based artist duo Austur-Íslendingar. The name reworks Vestur-Íslendingar, a historical term used for Icelanders who emigrated to America, and reflects questions of arrival, displacement and belonging. Their practice includes installation, textiles, image-based research and site-responsive work. They develop their projects through sustained processes of making and contextual inquiry, bringing together personal experience with historical reference. Their work is characterised by a careful use of materials and a clear spatial language, as they focus on how meaning is formed through presence, repetition and shared space.
Ragna Fróða: Echo
In the exhibition, Ragna Fróða invites us into an alluring world of patterns, colours, forms and textures. Her visual language is at once familiar and foreign, nostalgic and new. The starting point for the works in the exhibition is a series of ink drawings created in a state of flow, in direct dialogue between the subconscious and the hand. Through a multi-layered process, the uninhibited line of the drawing is transformed into digitally embroidered works that exist on the threshold between the abstract and the figurative. Ragna’s work centres on the creative process itself – the interplay of colour, texture and the narratives embedded in the patterns and symbols of textiles. By combining traditional craftsmanship with contemporary technology, Ragna seeks to expand the boundaries of craft, textile design and visual art.
Curated by Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir.
Ragna Fróða (b. 1970) is an Icelandic artist, curator and educator. Ragna studied fashion and textile design in Paris in 1992-1995 and later attended the textile department of the Icelandic College of Arts and Crafts in 1996-1998. She has worked extensively abroad and, over the past fifteen years, has lived alternately in New York, Berlin and Reykjavík, engaging in a wide range of projects related to art and design. For many years, she served as Head of the Textile Department at the Reykjavík School of Visual Arts and as Chair of the Icelandic Textile Association. In recent years, she has been based in New York, where she runs her own studio alongside her role as Executive Director of Edelkoort Inc. and New York Textile Month. She has received numerous grants in recognition of her work and contributions to art and culture. Her work has been exhibited in Iceland, across Europe and in the United States.
Free entry – see you at Hafnarborg.
