top of page

Hafnarborg: flæðir að - flæðir frá - Sýningaropnun

508A4884.JPG

fimmtudagur, 8. september 2022

Hafnarborg: flæðir að - flæðir frá - Sýningaropnun

Laugardaginn 10. september kl. 15 fögnum við opnun haustsýningar Hafnarborgar í ár, flæðir að – flæðir frá, í sýningarstjórn Sigrúnar Ölbu Sigurðardóttur en sýningin er sú tólfta í haustsýningaröð Hafnarborgar sem hóf göngu sína árið 2011.

Á sýningunni nú verður sjónum beint að strandlengjunni, sem er jafnt stórbrotin og uppfull af smáum lífverum, viðkvæmum gróðri og fjölbreyttum steinategundum. Takast þar á hið stóra og ofsafengna, hið smáa og viðkvæma, er öldurnar skella með krafti á ströndinni.

Verður strandlengjan skoðuð í gegnum verk listamanna frá ólíkum löndum þar sem sjórinn og strandlengjan mótar bæði menningu og atvinnulíf. Íbúar við sjávarsíðuna hafa í gegnum aldirnar byggt lífsviðurværi sitt að stórum hluta á nálægðinni við hafið en ströndin skilgreinir bæði mörk heimsins fyrir íbúana og er tenging þeirra við aðra heima. Hlutverk strandlengjunnar í þessu sambandi kann því að varpa ljósi á margvísleg viðhorf til umhverfisins, ábyrgð og stöðu mannsins í náttúrunni á mannöld.
Á tímum loftslagsbreytinga má líta á strandlengjuna sem eins konar átakasvæði. Þá hefur hækkandi sjávarborð bein áhrif á strandlengjuna – lífverur við ströndina eiga eftir að hverfa og aðrar nema land með hækkandi hitastigi og svo getur farið að hugsa þurfi byggð og búsetu við sjóinn út frá nýjum forsendum. Mun sýningin draga fram hversu samlíf okkar við náttúruna er viðkvæmt og dýrmætt, í þeirri von að hreyfa við áhorfendum og fá gesti til að hugsa um viðhorf sitt til strandlengjunnar á nýjan hátt og í nýju samhengi.

Listamennirnir sem taka þátt í sýningunni eru Alda Mohr Eyðunardóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Pétur Thomsen, Stuart Richardson, Studio ThinkingHand (Rhoda Ting og Mikkel Dahlin Bojesen) og Tadashi Ono.

Sigrún Alba Sigurðardóttir er sjálfstætt starfandi sýningarstjóri en hún hefur sett upp sýningar í Listasafni Íslands, Listasafni Árnesinga, Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Þjóðminjasafni Íslands. Þá vinnur hún nú að sýningu í samstarfi við Fotografisk Center í Danmörku, Landskrona Foto í Svíþjóð, Northern Photographic Center í Finnlandi og Listasafn Akureyrar. Sigrún Alba er stundakennari í listfræði við Háskóla Íslands og við hönnunardeild Listaháskóla Íslands. Hún hefur gefið út sjö bækur og fjölda fræðigreina, m.a. um íslenska myndlist og ljósmyndun.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page