top of page

Hafdís Houmøller Einarsdóttir - Mikilvægasta máltíð dagsins

508A4884.JPG

fimmtudagur, 20. júní 2024

Hafdís Houmøller Einarsdóttir - Mikilvægasta máltíð dagsins

Mikilvægasta máltíð dagsins er skemmtileg og girnileg sería þar sem allir Íslendingar ættu að finna máltíð við sitt hæfi.

Hafdís útskrifaðist með BA gráðu í tískuljósmyndun úr skólanum Leeds Arts University árið 2021, en hefur upp á síðkastið einbeitt sér meira að myndlist.

Verkin eru litrík líkt og Hafdís, og eru í formum sem teljast ekki beint hefðbundin fyrir listaverk á striga. Ásamt litríkum bakgrunni myndanna og girnilegs matar, eru það teiknimyndapersónurnar og umhverfið í kring um matinn það sem gerir myndirnar súrrealískar. Gaman er að sjá hvernig maturinn og persónurnar spila saman og hvaða heildarsýn það gefur.

Hugmyndin af seríunni tengist hugmynd Hafdísar um mat og tilfinningunni sem maður fær þegar góður matur er borðaður. Það er nánast eins og barnslegt eðli taki við og persónurnar sem við þekkjum úr teiknimyndum eru birtingarmynd þess.

Sýningaropnun verður fimmtudaginn 20. júní frá 18:00-20:00 og allir velkomnir!

Aðrir opnunartímar:
Föstudagur 21. júní   13:00 - 18:00
Laugardagur 22. júní 12:00 - 17:00
Sunnudagur  23. júní 14:00 - 17:00

Viðburðurinn er styrktur af Menningar og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page