top of page

Hafdís Helgadóttir: KJARNAÐ

508A4884.JPG

fimmtudagur, 16. apríl 2026

Hafdís Helgadóttir: KJARNAÐ

Gallerí Grótta
Eiðistorgi 11, 170 Seltjarnarnes

16.04 - 16.05. 2026

Málverkin á sýningunni byggja á tilraunum við að kjarna litaskala náttúrulegrar upplifunar í geometríska abstrakt myndbyggingu byggðri á hlutföllum. Hin geometríska ásýnd verkanna hefur verið í markvissri þróun í kjölfar þess að komast í snertingu við arabíska mynsturgerð í vinnustofudvöl í Marokkó árið 2017.

Í heild grundvallast sýningin á rannsóknum og tilraunum með liti og myndbyggingu þar sem hver litatónn og vægi hans innan heildarinnar er til skoðunar og leitað er eftir því að enginn litur hinnar upprunalegu upplifunar af landslaginu verði undanskilinn eða fórnað í því markmiði að ná fram þokkafullum eða þægilegum litaskala.

Að baki þessari nálgun býr löngun til að framkalla í verkunum andrúmsloft í ætt við þá sérstöku fegurð landslagsins sem blasti við á staðnum. Rannsóknir á litaskalanum og hlutföllum litanna, sem oft komu á óvart, ásamt framkvæmdinni við blöndun litanna sjálfra leiddu smám saman fram tilfinningu og hugsun um jöfnuð og vægi í víðara samhengi. Tengsl sem kröfðust þess að koma þyrfti hverjum einasta litatón fyrir í verkinu í álíka hlutfalli og hann birtist í raunveruleikanum, samtímis því að tekist var á við að skapa áhugavert málverk.

Úrvinnsla verkanna byggir á ljósmyndum sem teknar eru á viðkomandi stöðum, auk fjölda tilrauna og vinnu við myndbyggingu málverkanna sem gert er í tölvu. Þá er blöndun hvers einstaks litatóns í málverkið töluvert verkefni og afar áhugavert, en þeirri vinnur fylgir nákvæm skráning á blöndun litanna ásamt gerð lita-sýnishorna fyrir hvern einstakan lit.

Smærri verkin á sýningunni er raðir slíkra sýnishorna, með litatónum málverksins og litaheitum þeirra, sem kjörnuð voru beint á pappír samtímis málverkinu ásamt í pósitífum / negatífum formum skornum karton.

- - - - -

Hafdís Helgadóttir á að baki fjölda sýninga hér á landi og erlendis. Hún brautskráðist frá málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1992 og lauk meistaragráðu MFA árið 1996 frá Listakademíunni í Helsinki / Kuvataideakatemia Helsinki / The Academy of Fine Arts Helsinki.

Nánari upplýsingar um verk og feril: https://hafdishelgadottir.art

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page