Hafdís Helgadóttir: FLÆÐARMÁL

fimmtudagur, 18. júní 2026
Hafdís Helgadóttir: FLÆÐARMÁL
F L Æ Ð A R M Á L
Hafdís Helgadóttir
Minjasafni Egils Ólafssonar, Hnjóti, Örlygshöfn, Patreksfirði.
Sýningin opnar laugardaginn 20.júní og stendur fram í september.
Í sýningunni FLÆÐARMÁL, eru verk sem Hafdís Helgadóttir, vann sérstaklega fyrir sýningarverkefnið Umhverfingu 4 sem fjöldi listamanna með rætur eða tengsl við Vestfirði tók þátt í með jafnmörgum listaverkum víðsvegar í landsfjórðungnum og stóð yfir sumarið 2022.
Sýningin Flæðarmál er nú sett upp öðru sinni á svæðinu sem verkin eru tengd við og eru þau að þessu sinni sýnd í Minjasafninu á Hnjóti í Örlygshöfn við Patreksfjörð. Safnið er opið daglega kl.10-18.
Þegar Hafdís hafði ákveðið að taka þátt í verkefninu Umhverfing 4 kom nánast sjálfkrafa löngun hjá henni til að vinna með einhverja hugmynd sem tengdist svæðinu við Patreksfjörð þar sem hún á fjölskyldubönd og rætur og dvelur oft vikum saman.
Hún hóf að gera tilraunir með sand úr fjörunni í Örlygshöfn sem þróaðist í þá hugmynd að safna sandsýnum víðar af svæðinu og vinna með það í hugmynd að staðtengdum verkum. Í verkunum eru skoðaðir möguleikar þess að draga fram vísun í staðareinkenni sem felast í náttúrulegu efni og að finna leiðir í notkun þess við gerð myndlistaverka.
Hafdís hefur í myndlist sinni gjarnan tamið sér að gefa gaum að því sem gerist í vinnuferlinu, skissur, smá tilraunir eða einhver snifsi safnast og verða kannski líka verk eða efni í nýjar hugmyndir og eru nokkurs konar heimildir um sköpunarferlið. Þegar hún var að safna sandi í víkunum fyrir vestan tók hún samtímis ljósmyndir af hverjum stað og notaði síðan í verkin.
Af og til í gegnum árin hafði Hafdís unnið einstaka verk sem byggðu að einhverju leyti á geometríu s.s. lágmyndir og videoverk, en undanfarin átta ár hefur hún alfarið unnið þannig verk, aðallega í málverki og teikningu. Hugmyndavinna hennar með sandinn og fjörurnar leitaði því einnig í þá átt.
Í þeirri vinnu þróaðist hugmynd um að nota heiti staðanna í myndverk og finna aðferð við myndbyggingu sem léti efnið, sandkornin, móta myndrænt nöfn staðanna. Sú vinna lá meðal annars í gegnum kynni hennar af arabískri mynsturteikningu og listhandverki í vinnustofudvöl með alþjóðlegum hópi listamanna í Marokkó árið 2017. Þannig þróuðust nöfn staðanna þar sem sandinum var safnað í arabískan Kufic ferning með sandkornum á pappír en með latnesku letri. Kufic ferningur (e.Kufic square) er skrautskrift sem á sér aldagamla hefð í íslamskri byggingarlist og menningu og felst í því að móta texta inn í ferning og gera mynd eða tákn sem þarf samt ekki að vera auðlæsilegt.
Hafsjór af allskonar áhrifum og hugmyndum flæðir milli menningarheima og berst um jörðina. Það er því bæði áhugavert og mikilvægt að viðurkenna og leitast við að þekkja hvað þau tákna og hvaða vægi þau hafa innan menningarsvæðisins þaðan sem þau eru upprunnin, merkingu og rótum sé sýnd virðing ef tákn eru tekin upp og notuð.
Hafdís Helgadóttir er fædd á Patreksfirði 1949, hún býr og starfar í Reykjavík. Hún brauðskráðist úr málaradeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1992 og lauk mastersgráðu frá Listaakademíunni í Helsinki (Kuvataideakatemia), Finnlandi árið 1996. Hún hefur unnið með ólíka miðla s.s. video, teikningu, ljósmyndun, innsetningar, blandaða tækni og málverk.
Hún hefur átt verk í sýningum hér á Íslandi m.a. í Listasafni Íslands, Nýlistasafninu, Norræna húsinu, Listasafni Árnesinga, Landsbókasafni Íslands-Kvennasögusafni, Listasafni Akureyrar og tekið þátt í sýningum erlendis, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Þýskalandi og Marokkó.
Hafdís hefur einnig unnið og dvalið á listavinnustofum erlendis í Finnlandi, Marokkó, Svíþjóð, Þýskalandi, Frakklandi og Grikklandi.
