Gunnhildur Þórðardóttir-Place: Sprotar

fimmtudagur, 16. júlí 2026
Gunnhildur Þórðardóttir-Place: Sprotar
Á sýningunni Sprotar í sal sambands íslenskra myndlistarmanna sem verður opnuð laugardag 18. júlí kl. 17 eru ný og nýleg verk eftir Gunnhildi Þórðardóttur-Place. Á sýningunni skoðar Gunnhildur hvernig mynstur birtast í umhverfi okkar, þá sérstaklega í byggingum, hvort sem þau eru manngerð eða náttúruleg, varanleg eða breytileg. Hún vekur athygli á sífelldri breytingu og umbreytingu sem einkennir borgarlandslagið ásamt spennunni sem myndast á milli reglu og óreiðu, skipulags og tilviljunar.
Umhverfisvitund og hringrásarhugsun eru áberandi í verkunum og eru mörg hver unnin úr endurnýttum efnivið eins og rafmagnsvírum, strigum, timbri, plasti, textíl og málmi. Þannig umbreytir listamaðurinn efnum sem hafa lokið upprunalegu hlutverki sínu í ný verk með litum og formfræði að leiðarljósi sem sprettur af samspili margra miðla. Sýningin er opin frá 10-15 mánudaga til fimmtudaga og stendur til 4. ágúst. Á opnuninni mun listamaðurinn lesa ný ljóð og halda listamannaspjall síðasta sýningardag kl.14-16.
Þess má einnig geta að listamaðurinn er með aðra sýningu, Marglaga mynstur, í Listasal Mosfellsbæjar sem byggir á svipuðum grunni.
Gunnhildur Þórðardóttir-Place hefur sýnt verk sín víða á Íslandi og erlendis. Hún hefur einnig gefið út sjö ljóðabækur og hlotið viðurkenningar fyrir bæði myndlist og ritstörf. Í verkum sínum fléttar hún gjarnan saman myndlist, ljóðlist ásamt heimspekilegum vangaveltum um lífið, náttúruna og samfélagið.
