top of page

Gunnhildur Þórðardóttir-Place: Lokahóf og listamannaspjall - 7. ágúst

508A4884.JPG

miðvikudagur, 5. ágúst 2026

Gunnhildur Þórðardóttir-Place: Lokahóf og listamannaspjall - 7. ágúst

Föstudaginn 7.ágúst kl.16-18 mun Gunnhildur taka á móti gestum í lokhóf í spjall og ljóðalestur en sýning Gunnhildar Sprotar lauk 04. ágúst í SÍM salnum en þar tók hún einnig á móti fólki í listamannaspjalli og ljóðalestur.

Á sýningunni Marglaga mynstur í Listasal Mosfellsbæjar eru ný þrívíð og tvívíð verk eftir Gunnhildi Þórðardóttur-Place. Á sýningunum skoðar Gunnhildur hvernig mynstur birtast í umhverfi okkar sérstaklega í byggingum og hvort sem þau eru manngerð eða náttúruleg, varanleg eða breytileg. Hún vekur athygli á sífelldri breytingu og umbreytingu sem einkennir borgarlandslagið ásamt spennunni sem myndast á milli reglu og óreiðu, skipulags og tilviljunar.

Umhverfisvitund og hringrásarhugsun eru áberandi í verkunum og eru mörg hver unnin úr endurnýttum efnivið eins og rafmagnsvírum, strigum, timbri, plasti, textíl og málmi. Þannig umbreytir listamaðurinn efnum sem hafa lokið upprunalegu hlutverki sínu í ný verk með litum og formfræði að leiðarljósi sem sprettur af samspili margra miðla. Sýningin Marglaga mynstur í Listasal Mosfellsbæjar er opin alla virka daga frá 9-18 og stendur til 7.ágúst.

Gunnhildur Þórðardóttir-Place hefur sýnt verk sín víða á Íslandi og erlendis. Hún hefur einnig gefið út sjö ljóðabækur og hlotið viðurkenningar fyrir bæði myndlist og ritstörf. Í verkum sínum fléttar hún gjarnan saman myndlist, ljóðlist ásamt heimspekilegum vangaveltum um lífið, náttúruna og samfélagið.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page