Gunnhildur Þórðardóttir: Marglaga mynstur

fimmtudagur, 2. júlí 2026
Gunnhildur Þórðardóttir: Marglaga mynstur
Listasalur Mosfellsbæjar kynnir sýninguna Marglaga mynstur eftir Gunnhildi Þórðardóttur sem opnar föstudaginn 3. júlí kl. 16-18.
Í sýningunni skoðar Gunnhildur hvernig mynstur birtast í umhverfi okkar, hvort sem þau eru manngerð eða náttúruleg, varanleg eða hverful. Hún vekur athygli á sífelldri breytingu og umbreytingu sem einkennir bæði náttúru og tilveru mannsins ásamt spennunni sem myndast á milli reglu og óreiðu, skipulags og tilviljunar.
Umhverfisvitund og hringrásarhugsun eru áberandi í verkunum og eru mörg hver unnin úr endurnýttum efnivið eins og rafmagnsvírum, timbri , plasti og málmi. Þannig umbreytir hún efnum sem hafa lokið upprunalegu hlutverki sínu í nýja myndræna heild.
Gunnhildur Þórðardóttir hefur sýnt verk sín víða á Íslandi og erlendis. Hún hefur einnig gefið út sjö ljóðabækur og hlotið viðurkenningar fyrir bæði myndlist og ritstörf. Í verkum sínum fléttar hún gjarnan saman myndlist, ljóðlist ásamt heimspekilegum vangaveltum um lífið, náttúruna og samfélagið.
Á opnuninni mun Gunnhildur lesa upp úr nýjum ljóðum sínum.
Léttar veigar í boði á opnunardegi.
