top of page

Guðný Rósa Ingimarsdóttir og Gauthier Hubert: tvírit (the danger zone of sharing)

508A4884.JPG

fimmtudagur, 19. febrúar 2026

Guðný Rósa Ingimarsdóttir og Gauthier Hubert: tvírit (the danger zone of sharing)

Kling&Bang
Marshallhúsið, Grandagarður 20, 101 Reykjavík

Sýningartímabil: 21.02 - 29.03. 2026

Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningar listamannanna Gauthier Hubert og Guðnýjar Rósu Ingimarsdóttur tvírit (the danger zone of sharing) laugardaginn 21. febrúar kl. 17 í Kling & Bang.

Eins og venjulega í samstarfi þeirra Gauthier og Guðnýjar Rósu er uppsetning sýningarinnar einföld og unnin í þögn, jafnvel án þess að aukatekið orð sé sagt, samkvæmt því óskráða verklagi sem þau hafa margoft fylgt og felur í sér endurteknar og nánast ósjálfráðar hreyfingar sem þau kunna orðið utanbókar og kenna má við innsæi.

Í lok sýningatímabilsins kemur út bókin SQUAT - Dagbók sýningar í tilefni sýningarinnar. Bókin er gefin út af forlaginu La Lettre volée í Brussel þar sem Guðný Rósa og Gauthier eru búsett.

Sýningin og útgáfan er styrkt af Myndlistarsjóði, Myndstef og Starfslaunasjóði myndlistarmanna.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page