Guðný Rósa Ingimarsdóttir: Hornafjöldi í hættu
fimmtudagur, 27. júní 2024
Guðný Rósa Ingimarsdóttir: Hornafjöldi í hættu
Verið velkomin á opnun einkasýningar Guðnýjar Rósu Ingimarsdóttur, Hornafjöldi í hættu, á laugardaginn 29. júní kl. 17 í Ásmundarsal. Léttar veitingar og öll hjartanlega velkomin.
Guðný Rósa er fædd í Reykjavík 1969. Hún lauk námi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1994 og hélt þá utan til framhaldsnáms í Belgíu. Þar hefur hún verið búsett og starfandi nánast samfellt síðan en jafnframt verið virk í íslensku myndlistarlífi. Verk Guðnýjar Rósu bera með sér ríka nánd, jafnt í efnisvali sem vinnuaðferðum. Þau eru dæmi um listsköpun þar sem persóna og hönd listamannsins eru nálæg í hverju einasta verki, hverri einustu línu, saumspori, fláðu yfirborði og rifnu pappírsblaði, í hverju orði og setningu, hvort sem þær eru hennar hugarsmíð eða fengnar að láni. Um leið og efnisval og vinnuaðferðir bera því vott að Guðný Rósa leitar í nærumhverfi sitt eftir efnivið eru umfjöllunarefni hennar margslungin.