Guðmundur Thoroddsen: Hendingar

fimmtudagur, 9. apríl 2026
Guðmundur Thoroddsen: Hendingar
Opnun 11. apríl 2026 kl. 17 - 19
Þula, Marshallhúsið
Reykjavík
11.04 - 17.05.2026
Hendingar
Málverk sýningarinnar segja áreynslulausa sögu sem býður áhorfanda að túlka hana eftir sínu eigin höfði. Líkt og hendingar ljóða koma saman setningar og stuðlar í litum og formum sem Guðmundur skráir á strigann með ómstríðum pensilstrokum og skarpri teikningu olíustiftisins. Myndirnar eru ekki útreiknaðar, þær eru flæðandi og hvatvísar, þar sem eitt leiðir af öðru og koma að lokum saman í fullkomnu jafnvægi. Þessi leikandi nálgun Guðmundar á málverkinu gefur af sér abstrakt upplifun sem má líkja við náttúruna þar sem ofið er saman óræðum formum, litum og áferð sem talar beint til mannlegra tilfinninga.
Guðmundur Thoroddsen (f. 1980) lauk BA-prófi frá Listaháskóla Íslands árið 2003 og MFA-prófi frá School of Visual Arts í New York árið 2011. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga á Íslandi, í New York og víðsvegar um Evrópu, meðal nýlegra sýninga má nefna Up and Down hjá Asya Geisberg Gallery, New York (2025), Skriður / Drifts hjá Þulu, Reykjavík (2024) og Howling Hills hjá Asya Geisberg Gallery, New York (2021).
Guðmundur hefur einnig tekið þátt í samsýningum eins og Þverskurður / Cross Section hjá Þulu, Reykjavík (2025), Nightshade: The World in the Evening hjá Oakland University Art Gallery, Michigan (2025), Some Recent Works – New Acquisitions hjá Listasafni Íslands (2023–24), Future Fair í New York (2023) og Iðavöllur: Íslensk myndlist á 21. öld hjá Listasafni Reykjavíkur (2021).
Í abstrakt verkum sínum notast Guðmundur við olíustifti sem hann býr til sjálfur og nær hann fram einstakri áferð og ríkum sjónrænum áhrifum, sem oft er í mótvægi við hluta málaða með pensli. Þetta samtal milli þéttleika og andrýmis á striganum leiðir til hughrifa sem ferðast á milli landslags, textíls og samtíma abstraktlistar. Verk hans eru í bæði opinberum og einkasöfnum hér á landi og erlendis.
