top of page

Guðmundur Einar: Stemning sem var

508A4884.JPG

fimmtudagur, 30. október 2025

Guðmundur Einar: Stemning sem var

Sýningaropnun: Stemning sem var – Guðmundur Einar

Verið velkomin á opnun sýningarinnar „Stemning sem var“ í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur þann 30. október kl. 16-18. Léttar veitingar verða á boðstólum. Ókeypis inn!

„Stemning sem var“ er yfirskrift sýningar listamannsins Guðmundar Einars sem stendur yfir í Skotinu 30. október til 31. desember 2025. Á henni birtast okkur það sem hann kallar: „sjúskaðar en heiðarlegar leifturmyndir úr nálægri en rómantískri fortíð.“
Á tímabilinu 2010-2018 tók Guðmundur Einar mikinn fjölda mynda af fólki og hlutum sem gripu auga hans – aðallega í Reykjavík en einnig í Lundúnum og New York. Myndirnar, sem hann framkallaði ekki fyrr en nýverið, fanga stemningu þessa tímabils, og þegar hann sá þær áttaði hann sig á því að fyrir honum væru þetta dýrgripir.

Handan myndanna eru minningar hins liðna, sambönd sem hafa liðið undir lok, gömul heimsmynd. Þær sýna samfélag sem var en líka óvæntan, fundinn kafla í hans eigin ævisögu. Meðal viðfanga eru ýmsir þjóðþekktir aðilar, sem margir hverjir voru óþekktir þegar myndirnar voru teknar. Myndirnar vekja upp spurningar sem tengjast minningum og tíðaranda. Hvernig munum við eftir hlutunum? Er myndin traustari heimild um stemningu en minningin sjálf? Skiljum við augnablikið betur þegar við dveljum í því eða þegar við, löngu síðar, setjum það í samhengi tímans? Segir myndin sannleikann eða er hún valin, og að einhverju marki sviðsett sem tilraun til að segja ákveðna sögu?

//

Exhibition Opening: The Mood of Yesterday – Guðmundur Einar

Welcome to the opening of the exhibition „The Mood of Yesterday“ at the Reykjavík Museum of Photography 30 October at 16:00-18:00. Light refreshments will be served. Free entry!

"The Mood Of Yesterday" is the title of an exhibition by the artist Guðmundur Einar which will be on display from 30 October until 31 December 2025. It showcases what he calls: "scrubby but honest snapshots from a near yet romantic past."
Between 2010 and 2018, Guðmundur Einar took a large number of photographs of people and objects that caught his eye – mainly in Reykjavík, but also in London and New York. The photographs, which he only developed recently, capture the atmosphere of that period. When he saw them, he realized that, to him, they were treasures.

Behind the images are memories of a bygone time, past relationships, a different worldview. They depict a society that once was, but also an unexpected, discovered chapter in his own life story. Among the subjects are various nationally recognized individuals, many of whom were unknown when the photos were taken. The images raise questions related to memory and zeitgeist. How do we remember things? Is a photograph a more reliable record of an atmosphere than memory itself? Do we understand the moment better when we dwell in it, or when we, much later, place it in the context of time? Does the photo tell the truth, or is it chosen—and to some extent staged—as an attempt to tell a particular story?

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page