top of page

Guðjón Ketilsson : Spor

508A4884.JPG

þriðjudagur, 6. október 2026

Guðjón Ketilsson : Spor

Ásmundarsalur, opnun laugardaginn 10 október kl 16:00
Sýningin stendur yfir 10.10 - 08.11 2026

Á einkasýningu Guðjóns Ketilssonar, Spor, mætast fjórir verkhlutar sem ekki hafa verið sýndir áður; teikningar þar sem handskrifaður textamassi fyllir myndflötinn; hversdagslegir, fundnir hlutir sem öðlast nýja nærveru og annað hlutverk; olíukrítarteikningar af fundnum hlutum og stækkuð fingraför þar sem persónulegar hugleiðingar fylgja línum líkamans í teikniskrift. Sameiginlegur kjarni verkanna felst í því hvernig hugsun, nærvera og skynjun taka á sig sýnilega og efnislega mynd og skilja eftir sig ummerki.

Guðjón Ketilsson (f. 1956) býr og starfar í Reykjavík. Á rúmlega fjörutíu ára ferli hefur hann haldið yfir þrjátíu einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum í Evrópu, Bandaríkjunum, Kína, Ástralíu og á Norðurlöndunum, auk sýninga í helstu listasöfnum og sýningarýmum á Íslandi. Hann vinnur aðallega með teikningu og skúlptúr. Verk hans einkennast af nákvæmu handverki og rannsóknum á mannslíkamanum, hversdagslegu umhverfi, tíma, minni og sögu. Í nýlegum verkum kannar hann einnig tungumál og skrift sem framlengingu hugsunar og skoðar texta sem teikningu og mynd í senn, auk þess sem fundnir hlutir, sem lokið hafa fyrra hlutverki sínu, fá oft nýtt líf í skúlptúrum hans.

Guðjón hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2020 og var yfirlitssýning á myndlistarferli hans haldin á Kjarvalsstöðum, Listasafni Reykjavíkur árið 2022. Listferli Guðjóns hafa verið gerð skil í tveimur veglegum bókum, auk þess sem fjöldi minni útgáfa um einstaka sýningar hans hafa verið gefnar út. Verk hans eru í eigu helstu listasafna landsins, í einkasöfnum og nokkrum erlendum söfnum, þeirra á meðal í Metropolitan Museum of Art í New York.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page