Guðjón Bjarnason sýnir í San Antonio, Texas

fimmtudagur, 23. apríl 2026
Guðjón Bjarnason sýnir í San Antonio, Texas
Dock Space og Lone Star Galleries.
107 Lone Star Blvd, San Antonio, Texas, USA.
Dock Space og Lone Star Galleries kynna myndlistarsýningarnar WorldScapes & I´ceScapes - recent works by Gudjon Bjarnason.
Sýningarnar opnuðu 11. apríl, 2026 og standa út mánuðinn. Þær sýna úrval af fjölþættum verkum Guðjóns en þar á meðal eru stórar handmáluð prent og ljósmyndaseríur, skúlptúrainnsetningar, bandarísk heimildakvikmynd og fjórar nýjar útgáfur með skrifum listfræðinga og annarra fræðimanna um verk hans er spanna svið myndlistar, ljósmyndunar, byggingarlistar auk sérstakra tengsla náttúru og menningar við loftlagsbreytingar.
Sýningingarnar innihalda 20 verk úr nýlegri seríu hans „wORldScapes“ ásamt 10 verkum úr seríunni „I’ceScapes“. Rúmlega 50 myndverk eru sýningunum en í heild skapa verkin sjónræna samræðu milli landslags og abstraktlistar, orðræðu, menningar og skynjunar.
Einnig eru á báðum sýningunum nýleg sprengiverk Guðjóns. Stálskúlptúrarnir endurspegla rannsóknir hans á uppbyggingu, sundrungu, tungumáli, sambandi frelsis og helsis, listasögu og rýmisdýnamík - og brúa jafnframt starfssvið hans sem arkitekts og myndlistarmanns. Heimildamyndinni „DySTOPic ProgressiONs“ (8 mínútur) sem var framleidd var af kvikmyndafyrirtækinu Walley films fyrir Blue Star Contempoary safnið í Texas er einnig kynnt í Lone Star galleríinu.
Sýningarstjóri listviðburðanna tveggja er alþjóðlegi rithöfundurinn og fv. ritstjóri Art in America, Richard Vine frá New York. Hann ritar jafnframt megingrein ritsins „Painterly Experiments & Exploded Sculptures“ og inngang að „I´cscapes“ útgáfunni auk þess að vera ráðgjafi fyrir uppsetningu allra útgáfanna þ.m.t. „Compressed Realities & Exploded Photoworks“ og arkitektúrritið „Papertigers & Concrete Poetry“.
Guðjón sem starfar nú á Íslandi og að hluta til í USA en áður frá Genf í Sviss og Pondicherry á Suður-Indlandi er stofnandi GB-AAA (Gudjon Bjarnason Art & Architecture Ateliers). Hann er menntaður frá Rhode Island School of Design (RISD) í Providence (BFA, B.Arch), School of Visual Arts (MFA) og Columbia University (M.Arch II), NY. Verk hans hafa verið sýnd á alþjóðavettvangi, þar á meðal í Henie Onstad safninu, Oslo, Emily K. Wallis Gallery, Suny Collage, NY, Blue Star Contemporary, San Antonio,TX, HP Garcia Gallery, NY og National Academy of Arts (Lalit Kala) í Nýju Delí og á Feneyjartvíæringnum.
Guðjón Bjarnason er einkum kunnur fyrir kraftmikla stálskúlptúr sína, marglaga einlit myndverk og stafrænar umbreyttar „negatívar“ ljósmyndir auk framúrstefnulegrar hönnunar s.s. á SICPAC tónlistarhúsinu á Norðaustur-Indlandi. Kannar hann í hnattrænu samhengi skurðpunkt byggingarlistar, vistfræði, félagslegrar og geopólítískrar virkni og mannlegrar skynjunar. Verk hans hafa birst í leiðandi lista- og hönnunartímaritum og víða fjallað um þau í alþjóðlegum fjölmiðlum-sérstaklega á Indlandi og USA.
