GUÐJÓN BJARNASON: INVISIBLE FORCE: SOUND IN SCULPTURE

fimmtudagur, 26. nóvember 2026
GUÐJÓN BJARNASON: INVISIBLE FORCE: SOUND IN SCULPTURE
SCULPTURE-TUCSON, TUCSON, AZ, USA.
Opnun sunnudaginn 6. desember kl 16:00 - 19:00
Sýningin stendur yfir 06.12 - 30.04 2027
Guðjón var nýlega valinn til þátttöku höggmyndasýningu sem jafnframt er verðlaunasamkeppni, þar sem 16 listamenn alls staðar að hvaðanæva úr heiminum var boðið saman til uppsetningar á verkum sínum í garði SCULPTURE-TUCSON skúlptúrsamtakanna.
Sýningin, sem ber yfirskriftina „INVISIBLE FORCE: SOUND IN SCULPTURE“ (Ósýnilegur kraftur: Hljóð í höggmyndalist), beinist fyrst og fremst að því að skapa hljóðmyndir þ.e formrænt útlit og áferð skúlptúrsins er séð sem hliðarafurð. Sýningin samanstendur af 16 ólíkum verkum og innsetningum sem dreifast jafnt um 5.500 m² skúlptúrsvæði samtakanna innan miðborgarmarka Tucson.
Opnunarhátíð þessa metnaðarfulla tilraunaverkefnis, sem sýningarstjórinn Jeff Timian hefur umsjón með, fer fram þann 6. desember 2026 og stendur milli 16:00–19:00.
Sýningin stendur til 30. apríl 2027.
Abstrakt mynd af framlagi Guðjóns, má sjá í meðfylgjandi mynd úr væntanlegri sýningarskrá ásamt nöfnum annarra listamanna frá ýmsum heimshornum.
Innsetning Guðjóns nefnist
"MurMurs, Six mINuets of SeperatiONs for 7000 pounds" og samanstendur af samruna hljóðs frá hægfara dýnamítssprengingum frá gerð skúlptúrverka sem Guðjón vann með bandarísku fíkniefnalögreglunni og hermönnum í eyðimörkinni við San Antonio í Texas og sprengidrunum frá nýlegum eldgosum við Grindavík.
Skúlptúrinnsetning er gerð úr 20
svörtum stálprófílum sem vega 4 tonn og hvíla í ójafnvægi á ferköntuðum steyptum stalli. Falið innan verks eru hátalarar og er það staðsett á hringlaga svæði fyrir miðju garðsins.
Svar-hvítt 6.mínútna videó á lúpu með sama heiti þar sem ónáttúrulegar stálsprengingar og náttúruleg spýjandi eldgosaímyndir sem renna saman í eitt er varpað á tjald í HQ gallerí skúlptúrsamtakanna á svæðinu.
Aðstoð við myndbandsgerð veitti Logi Hilmarsson.
