top of page
Grafíksalurinn – sýningatímabilið 2027

þriðjudagur, 18. ágúst 2026
Grafíksalurinn – sýningatímabilið 2027
Íslensk Grafík
Grafíksalurinn – sýningatímabilið 2027
Hér með höfum við opnað fyrir umsóknir fyrir sýningatímabilið 2027 í Grafíksalnum. Viljum við bjóða listamönnum salinn til útleigu og eru félagsmenn í Íslenskri Grafík hvattir til að nýta sér þennan fallega sýningasal í miðbæ Reykjavíkur.
Umsóknir þurfa að berast félaginu í seinasta lagi föstudaginn 25. september n.k. í gegnum tölvupóstfangið islenskgrafik@gmail.com. Ef einhverjar spurningar vakna svörum við þeim jafnframt í tölvupósti. Vinsamlega takið fram hvaða tími myndi henta ykkur og munum við verða við þeim óskum eftir því sem mögulegt er.
Með kærri kveðju,
Sýninganefnd.
bottom of page
