Grafíksalurinn: Útópía/Staðleysa - Margrét Jónsdóttir - Sýningarlok 2. október
fimmtudagur, 29. september 2022
Grafíksalurinn: Útópía/Staðleysa - Margrét Jónsdóttir - Sýningarlok 2. október
Síðasti sýningardagur er 2.október á sýningunni ÚTÓPÍA/STAÐLEYSA í Grafíksalnum.
Verið velkomin, ekki missa af þessari sýningu!
Velkomin á sýningu Margrétar Jónsdóttur ÚTÓPÍA/STAÐLEYSA í Grafíksalnum Hafnarhúsinu, hafnarmegin; opið alla daga frá 14:00 til 18:00.
Sýningin stendur yfir til 2. október og er opin alla daga frá kl. 14 –18. Margrét sýnir verk sem hún hefur unnið undanfarin 3 ár og málað með náttúrulegum efnum.
MARGRÉT er fædd í Reykjavík. Hún hefur langan starfsferil og starfar við myndlist á Íslandi og Frakklandi. Menntuð við Myndlista og Handíðaskóla Íslands, diploma í frjálsri myndlist og síðar diploma í grafískri hönnun, mastersnám við Central Saint Martins College of Art í London og diploma frá Kennaraháskólanum. Hún hefur haldið yfir 50 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis. Margrét var einn af stofnendum Gallery Suðurgötu 7 sem var mikilvæg miðstöð í þróun framlínumyndlistar á Íslandi. Hún er í ritinu „Íslensk listasaga“, sem er fimm binda verk og spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar. Einn af stofnendum Hagsmunafélags Myndlistarmanna sem var undanfari Sambands Íslenskra Myndlistarmanna ásamt stofnun SÍM. Verk eftir hana eru í eigu helstu listasafna landsins. Hefur hlotið ferðastyrki og starfslaun listamanna. Félagi í FÍM, Íslensk Grafík, SÍM, Nýlistasafninu.
https://www.instagram.com/mjons_artist/
https://mjons.blogspot.com/