Gróskumessa á Garðatorgi 2025

fimmtudagur, 5. júní 2025
Gróskumessa á Garðatorgi 2025
Sýningin opnar laugardaginn 31.maí milli kl.14-17 og er stór samsýning sem haldin er á í Garðabæ, á Garðatorgi og í Gróskusalnum 2.hæð á torginu. Sýnendur er 59 og saman sýna þeir 125 myndlistarverk, aðallega málverk í akrýllit og olíu, vatnslitaverk og teikningar. Sýnendur koma úr ýmsum félögum myndlistarmanna á suðvesturhorni Íslands.
Það eru samtök myndlistarmanna í Garðabæ, Gróska, sem stendur fyrir sýningunni. Frá 2010 hefur Gróska haldið sýningu í kringum Jónsmessuna. Fyrstu 13 árin voru það útisýningar við Strandstíginn í Garðabæ, en félagið hefur í samstarfi við Garðabæ breytt hugmyndinni og haldið í fyrra og aftur í ár stóra samsýningu á Garðatorgi hvar reynt er bókstaflega að "bera myndlista á torg" fyrir fólk. Megin hugsjónin er tenging - að tengja listina og skapandi hugsun út úr hinu hefðbundna sýningarrými, tengja hin ýmsu listfélög saman og fá sveitarfélagið og hina ýmsu rekstraraðila með í samstarf í nafni myndlistar. Mörg fyrirtæki og rekstraraðilar á Garðatorgi eru í samstarfi við Grósku þessa sýningarviku, sýna myndlist hjá sér, veita Gróskumessuafslætti og fleira. Dagskrá Gróskumessu býður upp á skapandi barnastarf með Bastel föndukaffi, módelteikningarkvöld fyrir myndlistarfólk í Gróskusalnum, Luna Studio Blómabúð gefur blómaskreytingu sem stillt verður upp á torginu og verður myndefni málara, JBK Ransu heldur fyrirlestur í Gróskusalnum um Dulspeki í myndlist og Tangófélagið verður með sýnikennslu og kennir fólki að dansa tangó (Milonga). Nánar um dagskránna á facebook síðu Grósku (https://www.facebook.com/groska210).
Sýningin stendur frá 31.maí-08.júní 2025.
Er opin sem segir:
Garðatorg er opið frá kl.08-19
Gróskusalurinn er opinn um helgar frá kl.14-17
og virka daga milli kl.15-18.