top of page

Gróska: Rökkur - Haustsýning Grósku 2022

508A4884.JPG

þriðjudagur, 25. október 2022

Gróska: Rökkur - Haustsýning Grósku 2022

Rökkur: Haustsýning Grósku 2022
Opnun föstdaginn 28. október kl. 18:30-22
í Gróskusalnum og á Garðatorgi í Garðabæ
Sýningin er opin áfram helgarnar 29.-30. október og 5.-6. nóvember kl. 13:30-17:30

Haustsýning Grósku verður opnuð föstudaginn 28. október kl. 18:30-22 í Gróskusalnum á 2. hæð, Garðatorgi 1, og einnig á torginu fyrir framan. Þema sýningarinnar er rökkur og opnunin tengist listahátíðinni Rökkvan sem haldin er á Garðatorgi sama kvöld. Sýnendur eru 23 og allir í Grósku, félagi myndlistarmanna í Garðabæ. Sýningarstjóri er Laufey Jensdóttir myndlistarmaður.

Fólk er hvatt til að gera sér glaðan dag, göfga andann og njóta hauströkkursins, bæði á sýningu Grósku og Rökkvunni. Myndlistarmennirnir verða á staðnum.

Allir eru hjartanlega velkomnir, Garðbæingar jafnt sem aðrir listunnendur, og þau sem ekki komast á opnunina þurfa ekki að örvænta því sýningin er opin áfram helgarnar 29.-30. október og 5.-6. nóvember kl. 13.30-17.30.

Gróska er öflugt myndlistarfélag sem stendur fyrir allnokkrum myndlistarsýningum á ári, auk námskeiða og annarra viðburða. Í félaginu er fjölskrúðugur hópur fagmenntaðra og sjálfmenntaðra myndlistarmanna en ein af hugsjónum Grósku er að allir fái að blómstra og njóta sín við listsköpun. Í rúmlega tólf ár hefur starfsemi Grósku skapað mikilvægan vettvang fyrir skapandi samneyti myndlistarmanna og eflt myndlistina og menningarlíf Garðabæjar. Myndlistarmenn sem búa eða vinna í Garðabæ eru hvattir til að sækja um inngöngu í Grósku gegnum fésbókarsíðu Grósku https://www.facebook.com/groska210/ eða með því að senda póst á groskamyndlist@gmail.com.

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn

SAMBAND
ÍSLENSKRA
MYNDLISTARMANNA

Hafnarstræti 16, 101 Reykjavík, Ísland

Skrifstofan er opin virka daga frá kl 12 -16

Sími/ Tel.: +354 551 1346
Email: sim@sim.is

Kt. 551283-0709

Samfélagsmiðlar

  • Facebook
  • Instagram
logo_white_edited.png

© Samband íslenskra myndlistarmanna, 2024

bottom of page