Gestavinnustuofur SÍM hljóta styrk úr sjóði NCP

fimmtudagur, 7. maí 2026
Gestavinnustuofur SÍM hljóta styrk úr sjóði NCP
Gestavinnustofa SÍM hefur hlotið styrk frá Norrænu menningargáttinni (Nordic Culture Point) úr Norræn-baltnesku hreyfanleikaáætluninni fyrir menningu til stuðnings starfsemi gestavinnustofunnar. Úthlutað voru 29.954 evrur fyrir tveggja mánaða dvöl fyrir fjóra norræna og baltneska listamenn og sýningarstjóra í september og október 2026.
Fjórtán listamannadvalir hlutu styrki að heildarupphæð 538.000 evrur á fundi fagráðsins í apríl. Þar var sótt um samtals 2,8 milljónir evra og var samþykktarhlutfallið 19%.
Verkefnið styður við listrænar rannsóknir og vinnslu sem fjalla um sjálfbærni, vistfræði, félagslegt jafnrétti og norrænar menningarfrásagnir. Þátttakendur munu þróa eigin verkefni samhliða þátttöku í vinnustofuheimsóknum, umræðum og samstarfi. Opnar vinnustofur og listamannaspjall fyrir almenning munu skapa vettvang fyrir samtal við nærsamfélagið um umhverfis- og samfélagsleg málefni.
