top of page

Gerðuberg: Hvernig ertu? - Einkasýning Prins Póló

508A4884.JPG

miðvikudagur, 25. maí 2022

Gerðuberg: Hvernig ertu? - Einkasýning Prins Póló

Hvernig ertu? | Einkasýning Prins Póló
Borgarbókasafnið | Menningarhús Gerðubergi
Opnun laugardaginn 28. maí kl. 14:00-17:00

Sýningin stendur 28. maí – 28. ágúst


Svavar Pétur Eysteinsson tekur leggur undir sig Borgarbókasafnið Gerðubergi og sýnir ljósmyndir, prentverk, vídeóverk og skúlptúr.

Á sýningunni blandar Svavar saman eigin tónverkum, myndlist og ljósmyndum, en samhliða undirbúnings á sýningunni hefur Svavar unnið að nýrri hljómplötu sem kemur út á opnunardegi sýningarinnar.

Svavar er flestum kunnur sem tónlistarmaðurinn Prins Póló, en hann er jafnframt grafískur hönnuður og ljósmyndari. Hann vinnur texta, tónlist og myndræna framsetningu jöfnum höndum, en í verkum sínum sækir Prinsinn oft innblástur í "sjoppulegan" hversdagsleikann, með litríkri upphafningu og húmor.

Svavar Pétur er alinn upp í Breiðholtinu og því er mikill fengur fyrir Borgarbókasafnið að fá tækifæri til að sýna verk Svavars sumarið 2022.

Sýningin opnar 28.maí og stendur uppi til og með 28.ágúst.

Viðburður á Facebook - https://fb.me/e/3kbI695M7
Sýningin stendur 28. maí – 28. ágúst

Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page