top of page

Gerðarsafn: Geómetría - Sýningaropnun

508A4884.JPG

föstudagur, 7. október 2022

Gerðarsafn: Geómetría - Sýningaropnun

Opnun | Geómetría
8.10.2022 kl. 15:00
Verið velkomin á opnun sýningarinnar í Gerðarsafni laugardaginn 8. október kl. 15. Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, opnar sýninguna.

Geómetría spratt úr tilraunamennsku og framsæknum hugmyndum um eðli og möguleika listarinnar. Hreyfingin kom sem loftsteinn inn í íslenskt menningarlíf í upphafi sjötta áratugarins og olli straumhvörfum í listalífi þjóðarinnar. Hreyfingin var andsvar við ríkjandi fagurfræði þar sem leitast var við að finna nýjar leiðir til sköpunar og tjáningar. Geómetrían var ekki einangruð myndlistarstefna heldur nýtt viðmót, túlkun og tjáning á samtímanum þar sem myndlistin flæddi út fyrir rammann, samruni listgreina var mögulegur og borgin var vettvangur menningar.

Listamenn sýningarinnar eru Ásgerður Búadóttir, Ásmundur Sveinsson, Benedikt Gunnarsson, Eiríkur Smith, Eyborg Guðmundsdóttir, Gerður Helgadóttir, Guðmunda Andrésdóttir, Guðmundur Benediktsson, Hafsteinn Austmann, Hjörleifur Sigurðsson, Hörður Ágústsson, Karl Kvaran, Kjartan Guðjónsson, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Málfríður Konráðsdóttir, Nína Tryggvadóttir, Skarphéðinn Haraldsson, Svavar Guðnason, Sverrir Haraldsson, Vala Enard Hafstað, Valtýr Pétursson & Þorvaldur Skúlason.

Sýningarstjórar: Brynja Sveinsdóttir & Cecilie Gaihede.
Sýningarhönnun: Hreinn Bernharðsson & Studio Studio.

Bókin Abstrakt geómetría kemur út á opnun sýningarinnar með textum eftir Ásdísi Ólafsdóttur og Sjón. Að útgáfunni standa Knútur Bruun og Ólafur Kvaran.




Geómetría | Lofsteinn í íslenskt menningarlíf
9.10.2022 kl. 14:00
Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur og Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur fjalla um innkomu geómetríu í íslenskt menningarlíf á sjötta áratugnum á málþingi í Gerðarsafni laugardaginn 9. október kl. 14. Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns leiðir samtalið.

Á sýningunni Geómetría má sjá verk íslenskra listamanna sem voru í hringiðu módernisma og framúrstefnu í París á 6. áratugnum. Módernískar listhreyfingar spruttu úr frjóum jarðvegi mikilla samfélagslegra breytinga með tæknilegum framförum, pólitískum óróa og þéttbýlismyndun. Við þessa umturnun á samfélaginu skapaðist fráhvarf frá fyrri háttum og kallaði á nýja nálgun á umhverfið.


Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page