top of page

Gerðarsafn: ALDA & Við getum talað saman - Tvær sýningaropnanir

508A4884.JPG

miðvikudagur, 8. júní 2022

Gerðarsafn: ALDA & Við getum talað saman - Tvær sýningaropnanir

Opnun | ALDA & Við getum talað saman
11.06.2022 kl. 14:00

Verið öll hjartanlega velkomin á opnun tveggja nýrra sýninga; ALDA & Við getum talað saman, í Gerðarsafni laugardaginn 11. júní kl. 14.
Sýningarnar eru hluti af Listahátíð í Reykjavík.


ALDA

ALDA er áhrifarík innsetning á mörkum dans og myndlistar, flutt af hópi kvendansara, þar sem danshöfundurinn Katrín Gunnarsdóttir sækir í sögu líkamlegrar vinnu kvenna og skoðar sérstaklega endurteknar hreyfingar og söngva, með það að markmiði að skapa aðstæður fyrir nána kvenlæga samveru, samhug og samruna.
Titill verksins, Alda, endurspeglar bæði ölduna sem hreyfiform, en vísar líka í tímann og söguna, hið gamla og nýja.
Listafólk: Katrín Gunnarsdóttir danshöfundur, Eva Signý Berger hönnuður og Baldvin Þór Magnússon hljóðhönnuður
Sýningarstjóri: Brynja Sveinsdóttir
Dansarar: Aðalheiður Halldórsdóttir, Anais Barthe, Halla Þórðardóttir, Heba Eir Kjeld, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Snædís Lilja Ingadóttir, Sólbjört Sigurðardóttir, Védís Kjartansdóttir
Samstarfsaðilar: Listahátíð í Reykjavík, Multiplie Dance Festival & DansiT, (Throndheim), Finlayson Art Area (Tampere)


_____________________________________________________________________________________________________

Við getum talað saman

Þurfum við að velta því fyrir okkur hvað Norðurlöndin þýða? Hvað Skandinavía þýðir? Þegar við sameinumst undir formerkjum slíkrar hugmyndar sjáum við að við erum bæði líkari og ólíkari en við töldum. Við deilum mörgu en ekki öðru. Við sjáum líka að hugmyndin er búin til – að við búum hana til. Hér sýnir ungt listafólk frá þessum norðurslóðum verk búin til í okkar síbreytilega veruleika.

Platform GÁTT er samstarfsverkefni fimm stórra þverfaglegra listahátíða og stofnana á Norðurlöndum sem hefur verið starfrækt frá árinu 2019. Lokaviðburðurinn fer fram á Listahátíð í sumar. Í þessu þriggja ára verkefni sem fór fram í fimm löndum beindist kastljósið að listafólki undir 35 ára aldri.

Listafólk: Constance Tenvik, Nayab Ikram, Laura Marleena Halonen (Ilmastokirkko), Ronja Louhivuori (Ilmastokirkko), Una Björg Magnúsdóttir, Loji Höskuldsson, Melanie Ubaldo
Sýningarstjóri: Starkaður Sigurðarson
Samstarfsaðilar: Listahátíð í Reykjavík, Bergen Festspillene, Helsinki Festival, Norðurlandahúsið í Færeyjum, Nuuk Nordisk Kulturfestival & Nordisk Kulturfond


Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
Bildschirmfoto 2021-05-08 um 15.16.09.pn
bottom of page